Nú vantar Kvartmíluklúbbinum dygga og trausta aðila sem geta tekið að sér að aðstoða við uppröðun á bílum í Kórinn nk. fimmtudag, frá kl. 18.00. Búið er að gera grunnhugmynd um uppröðun á korti, og vænst er til þess að nokkrir góðir aðilar geti tekið að sér að framfylgja því eftir besta móti.
Þeir sem hafa áhuga geta mætt í Kórinn á morgun, fimmtudag frá kl. 18.00 og haft samband við mig, eða hringt í síma 696-5717.
ATH: Kórinn er ekki opinn á þessum tíma fyrir forvitna aðila sem ætla aðeins að koma og fylgjast með, þeim verður umsvifalaust vikið út.