Kvartmílan > Muscle Car deildin og rúnturinn.

Rúntur Rúntur Rúntur Rúntur

(1/1)

emm1966:
Ætlum nokkrir að rúnta á morgun 16.5 frá mosó á þingvöll og selfoss.

Hist verður í flugumýrinni hjá sigga sprautara kl 12:00 og farið þaðan ekki seinna en 13:00.

Allir eru velkomnir með.




http://ja.is/kort/#q=index_id:229022&x=368015&y=408996&z=8&type=aerial 

kcomet:
þetta var þrælgoð ferð, veðrið frábært. Þökkum Gulla Emils, fyrir mótökurnar, það var eins og að fara í einhvern ævintýra heim að skoða dóta kassann hans. Verðum að endurtaka svona ferðir, aðeins utfyrir bæinn, kíka í skúra, skoða hvað félagarnir eru að brasa. Það koma örugglega myndir.

                                               Takk fyrir mig..  K. comet



emm1966:
Já þetta var bara snilld, allsstaðar sem við komum var tekið vel á móti okkur, fólk vildi fræðast um bílana og spjalla um gömlu bílana sem það átti áður fyrr og verð ég að segja flúðir kom mér mest á óvart í þennan skúr hef ég aldrei komið áður og toppaði það ferðina en í öðru sæti voru vöfflurnar.
Vonandi förum við aftur fljótlega og oft í sumar því þetta er miklu skemmtilegra en að aka laugarveginn.

Myndir eru að uploadast inná http://rides.webshots.com/album/572123218DicLpx

Moli:
Það klikkar aldrei að fara í heimsókn til Gulla Emilss. maðurinn er gull af manni og tekur manni alltaf fagnandi, amk. í öll þau skipti sem ég hef komið til hans. Eins er skúrinn hans fullur af demöntum sem bíða uppgerðar, hvort sem það verður af honum eða afkomendum hans!  8-)

motors:
Það er heilt ævintýri að koma í þennan skúr til hans,svo er maðurinn greiðvikinn og vill allt fyrir mann gera,og mikill viskubrunnur um gamla bíla,kanski sér í lagi um Mopar.Klapp fyrir Gulla. =D>

Navigation

[0] Message Index

Go to full version