Kvartmílan > Bílarnir og Græjurnar

Trans Am að koma á klakann......... bara flottur

<< < (2/3) > >>

E-cdi:
flottur.. maður sá strax að hann væri turbo.. hvítur.. hvítar felgur. hvít innrétting og allur í gull lími..

en eitt sem ég skil ekki og mun eflaust aldrei gera.. afhverju þeir skrufuðu ekki bara turbó á v8 þarna í denn.. í stað þess að skella þessu á v6. eins og þetta er nu fallegir bilar og öskra muscle :)

til lukku með gripin

Burt Reynolds:
Reyndar er þessi Turbo kaggi með V8 vél.  :D
Hvers vegna kynslóðirnar á undan voru ekki Turbo veit ég ekki en hefur sjálfsagt ekki komið að sök því þeir voru svo fjandi öflugir fyrir.

GO 4 IT:
Öflugasti Trans Am sem hefur verið framleitur er árgerð 89 3.8 v6 turbó. Held að ekki einu sinni nýustu bílanir hafi hann. Hann seldist illa útaf því að hann var v6. Corvetta átti ekki neitt í þennan bíl þegar hann kom á markað.
Kveðja Magnús.

















Nonni:
Hann seldist ekki illa, þetta var 20 ára afmælisútgáfa sem var framleidd í takmörkuðu upplagi eða 1.555 bílar.  Ef ég man rétt þá kostaði hann líka á við Corvette á þessum tíma þannig að það var töluvert ódýrara að kaupa venjulegan Transam GTA með 350 TPI.  Þeir voru skráði 250 hestöfl en það var kolröng skráning líklegast til að skyggja ekki á vettuna sem var 245 hestöfl á þessum tíma.

Það kæmi mér ekki á óvart að þessir bílar séu á pari við LS1 bílana, jafnvel sneggri, og það er víst mjög auðvellt að tjúna þá og taka fáránlega tíma :)

íbbiM:

--- Quote from: E-cdi on May 19, 2009, 19:14:41 ---flottur.. maður sá strax að hann væri turbo.. hvítur.. hvítar felgur. hvít innrétting og allur í gull lími..

en eitt sem ég skil ekki og mun eflaust aldrei gera.. afhverju þeir skrufuðu ekki bara turbó á v8 þarna í denn.. í stað þess að skella þessu á v6. eins og þetta er nu fallegir bilar og öskra muscle :)

til lukku með gripin

--- End quote ---

vinna heimavinnuna sína..  þú ert að tala um 3rd gen

Navigation

[0] Message Index

[#] Next page

[*] Previous page

Go to full version