Kvartmílan > Leit að bílum og eigendum þeirra.

Chevelle 1969

<< < (2/5) > >>

Daði S Sólmundarson:
Ég held að hann hafi einmitt verið nákvæmlega svona nema einlitur rauður var þrælfallegur man ég.

kv Daði

Rúnar M:
ok þetta var þá LeMans....sá sem ég man eftir var alveg pottþétt ekki með hvítum víniltopp en hvar eru þessar myndir teknar og hvenær...?   ef einhver veit...

Daði S Sólmundarson:
Mér sýnist þessar myndir vera teknar á Selfossi. Það var einu sinni umræða hérna um þennan bíl hann er víst orðinn ennþá ver farinn núna en á þessum myndum sem er alveg synd :cry:.  Þessi var mjög fallegur nýuppgerður ca 91 eða 92.

kv Daði

Kiddi:
Ég held að þið séu að tala um '70 Lemans sem var og er enn á Selfossi. Var tættur í parta síðan og hefur ekki farið saman aftur. Hann er rauður og er með 4 láréttum ljósum að framan.

Gummari:
búið að henda le mans-inum með hvíta vinylinn ógreiddur reikningur á geymslusvæðinu góða var mér sagt  :-({|=

Navigation

[0] Message Index

[#] Next page

[*] Previous page

Go to full version