Kvartmílan > Aðstoð
Bora drepur á sér
valurcaprice:
Daginn, ég er með VW Boru árgerð 1999 og með 1600 vél.
Þegar að ég starta bílnum þarf ég nánast alltaf að stíga aðeins á bensíngjöfina til að fá hann í gang, svo þegar að ég stoppa bílinn á lósum eða eithvað er gangurinn í honum leiðinlegur, drepur næstum á sér fer aftur upp og svo niður, (tekur smá tíma að ná stöðugum snúningshraða) svo verður bíllin enn verri ef að það er búið að keyra á honum í klukkutíma eða álíka þá kemur fyrir að hann drepur á sér þegar að ég stoppa á ljósum.
veit einhver hvað vandamálið er?
kv. Valur
Emil Hafsteins:
Er mjög líklega súrefnisskynjari,er ekki mikið mál að skipta um og er ekkert svo dýr. Strákarnir í Heklu geta líka örugglega sagt þér til með þetta,hafa ellavega verið mjög liðlegir við mig.
valurcaprice:
ef að þetta væri súrefnisskynjarinn ætti bíllin ekki að starta venjulega og ganga venjulega þangað til að bíllin væri heitur?
Bílin er með leiðinlegan gang strax í upphafi og versnar svo löngu eftir að hann er búin að ná fullum hita.
Gaur sem að ég talaði við um dagin datt í hug að þetta væri einhver blaðka í innspýtingunni sem að væri eithvað drullug og stíf vegna óhreyninda sem gæti ollið þessu, hvað segið þið um það eða eruð þið með einhverjar fleiri hugmyndir.
Með þökkum, Valur Kristinsson
Guðbjartur:
Skoðaðu vakúmslönguna sem kemur í bremsukútinn, þær hafa verið að fara þónokkuð og þá fer bíllinn að ganga ýlla.
Kv Bjartur
garðverji:
Sæll þetta er sennilega drulla í spjaldhúsi fáðu þér carbcleaner og hreinsaðu það þetta er mjög algengt
KV Jón
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version