Kvartmílan > Alls konar röfl

Sjö áhorfendur slösuðust á kappakstri [myndband]

(1/2) > >>

Belair:
http://www.youtube.com/v/6nlytg1bYI0&hl=en&fs=1

Það fór betur en áhorfðist á Nascar kappakstri í Talladega í Bandaríkjunum í gær. Keppnisbíll kastaðist á varnargirðingu fyrir framan áhorfendur, en sjö þeirra slösuðust þegar brot úr bílnum þeyttust í hóp áhorfenda.
Nascar er vinsælasta akstursíþróttin vestan hafs og keppt um hverja helgi. Mikill slagur var um fyrsta sætið og reyndi Carl Edwards að verjast sókn Brad Keselowski í síðasta hring mótsins. Þeir skullu saman, Edwards snerist í veg fyrir Ryan Newman sem varð til þess að Edwards tókst á loft og skall á varnargirðingu.
Sjö áhorfendur hlutu minniháttar meiðsl, en ein kona var flutt á spítala með þyrlu vegna áverka í andliti. Edwards slapp ómeiddur og Keselowski vann sigur í mótinu.
"Það var leiðinlegt að vinna á þennan hátt, en Edwards ók í veg fyrir mig og olli þessu óhappi í síðasta hring. Ég horfði á hann velta í baksýninspeglinum, en hann þekkir reglurnar eins og ég. Hefði átt að vita vetur", sagði Keselowski eftir keppnina.
Fyrrum Formúlu 1 ökumaðurinn Juan Pablo Montoya var fremstur á ráslínu en lét ekki að sér kveða um helgina.
Staðan í Nascar1. Kurt Busch 1299 2. Jeff Gordon 1294 3. Jimmie Johnson 1235 4. Tony Stewart 1232 5. Denny Hamlin 1190 6. Kyle Busch 1124 7. Carl Edwards 1119 8. Clint Bowyer 1098


ljotikall:
minnir okkur a ad þetta er ekki alveg hættulaust
http://www.youtube.com/v/P7ytzs_TE8c&hl=en&fs=1

Kristófer#99:

--- Quote from: ljotikall on April 28, 2009, 12:52:01 ---minnir okkur a ad þetta er ekki alveg hættulaust
http://www.youtube.com/v/P7ytzs_TE8c&hl=en&fs=1

--- End quote ---

Ég skil ekki allveg þetta video, hvað er átt við með því?

Belair:
Sjö áhorfendur slösuðust þegar brak úr nascar lenti á þeim og strákur lést þegar brak skaust undan monster truck , það er árið 2009 og en í dag erum við að vinna við að tryggja öryggi áhorfenda og eftir 80 ár eru en dauðaslys

Kristófer#99:
ok, skildi ekki neðra videoið með monster truck num

Navigation

[0] Message Index

[#] Next page

Go to full version