Hæ.
Ég er höfundur að þessu tæki, sem var EVA II eftir að Barracudan framdi sjálfsmorð í hrauninu. Vorum með sömu vél og skiftingu. og var í Cudunni.
EVA stóð upphaflega fyrir Eyþór Valur Ármann sem var "gengið" í þessum tilraunum..
Athugið að þetta er smíðað 198? og einu fyrirmyndirnar sem maður hafði var úr HotRod blöðum, það voru engr teikningar eða spjallrásir til að fara inná svo allt var gert af okkur og við þurftum að finna upp allskonar hjól. Td. hvernig maður smíðar hurð úr plasti ytra og innra byrði og setur það saman.. létt en samt það sterkt að þær fari ekki af í 3 gír.... náðum hurðum t.d. það léttum að maður hélt á hurðinni með þumal og vísifingri með því að halda um efsta part á "rúðunni" (engir listar) og þetta var með læsingum og lömum.
Framfjöðrunin var samsett úr einhverjum Peugot dempurum og gormar undan tjaldvagni (smíðuðum "Tool" til að mæla gorma ) Ford Cortina stýrisvél. Allar bremsur voru skálar 2,5" X 11" undan Polora pramma. og það var aldrei bremsuproblem á þessum bíl..
Skelin var tekin og "skræld" úr henni öll tvöföldun skafin úr (nokkur kvöld með loftmeitil og slípirokk.) steyptum sjálfir framstæðu með stuðara og húddi. svo skottlok. og náttúrlega hurðirnar, öll innri klæðning var smíðuð úr áli og gerðum það allt sjálfir, nema ég fékk einhvern höfðingja til að valsa afturskálarnar og "lásinn" í innri hliðarnar á þeim.
Ég man nú ekki töluna en mig minnir að það hafi farið á annað þúsund hnoð í "álvinnuna" og passað var að rillur pössuðu saman gólf./hjólskálar/skott. þannig að þetta var allt í stíl...
Vélin var 446 "big" block mopar með járn heddum og innspýtingu af einhverjum 64-65 nascar (eða hringaksturs) bíl og hún virkaði ágætlega það var 11,2 þjappa mech. knastur (engar rúllur) og heimasmíðað olíukerfi. (10 l´trar með fullt af hurðum skvettihlífum og "swinging" pickup, sem var handfang af bensinstöðvar bensíndælu.) hefðum viljað ná meiri þjöppu en ein "sveifin" var "ásoðin" og það var aðein meiri slaglengd á henni en hinum og eitt stimplapar stóð því aðeins ofar en hinir..
Skiftingin var með Man ventlaboddý og 9" converter. 4,88 hlutfall spool og 35 rillu öxlar.
Bíllinn sjálfur var mjög léttur rétt losaði tonn með þessum járnklump og 727 skiftingu (ekki létt) fjöðrunin var æðisleg og billinn mjög ljúfur að keyra, sérstaklega í sandi þar sem hann leið áfram einsog "töfrateppi"
Ég sjálfur gerði hroðaleg mistök þegar ég verslaði slikkana, átti pantaða slikka sem áttu að vera fyrir þetta tæki en þegar kom að því að ég færi heim, (var að vinna hjá MOTION á Long Island) vöru slikkarnir ekki komnir og ekki von á þeim þannig að ég fór í listann og fann aðra að svipaðri stærð og tók þá.. eftir MJÖG mörg stört uppá braut búið að prufa næstum allar stillingar á 4 linkinu og framhæð stopparar etc. hringdi ég í Goodyear kallin og sagði farir mína ekki sléttar. "ertu með Lenco.?" nei.. "ertu með steypt start.?" nei.. "þá færðu þessa slikka aldrei til að grípa"
Ekki voru til aurar fyrir öðrum slikkum og því náðist aldrei gott grip.
Besti tími í keppni var 9,98 en var mjög steddý 10,15-10,20. náðum 9,81 á æfingu einu sinni en svo var síðasta keppnin aldrei haldin (Ringdi út þetta haust.) Náðum 4,24 í sandi. og vorum nokkuð ánægði með það...metið stóð í nokkur ár..
Þetta var nú með þessum bracket mótor og flugvéla bensín, ekkert NOS. og ekkert Transbrake. "Ónýt braut" og alles....
Kveðja.
Valur Vífilss. bílasmiður.