Author Topic: Smá hlátur  (Read 1555 times)

Offline emm1966

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 554
    • View Profile
    • Videó safnið
Smá hlátur
« on: March 04, 2009, 16:36:32 »
Við konan mín lágum uppi í rúmi og horfðum á Villtu vinna milljón.
Ég snéri mér að henni og sagði, “ Villtu gera do do ? “
Hún svaraði, “ Nei”
Ég spurði, “ Er þetta þitt lokasvar” ?
Hún leit ekki einu sinni á mig er hún svaraði “ Já”
Ég sagði, “Þá langar mig að hringja í vinkonu”
og þá fór allt í bál og brand….

............................................................................
Ég spurði konuna mina, “ Hvert langar þig að fara á brúðkaupsafmælinu okkar” ?
Mér hlýnaði um hjartarætur að sjá hvernig hún lifnaði öll við og horfði á mig
með aðdáun er hún svaraði,
“Eitthvert sem ég hef ekki farið lengi “
Með það í huga kom ég með uppástungu,
” Hvað með eldhúsið “ ?
Og þá fór allt í bál og brand….
............................................................................
Síaðsta laugardag vaknaði ég snemma. Ég klæddi mig hljóðlega, útbjó nesti, kallaði í hundinn og læddist út í bílskúr. Ég húkkaði bátinn aftan í bílinn, opnaði bílskúrshurðina og var kominn hálfur út þegar ég sá að úti var brjálað rok og rigning. Ég bakkaði aftur inn í skúrinn og kveikti á útvarpinu, aðeins til að uppgötva að svona átti veðrið að vera alla helgina. Ég fór því aftur inn, klæddi mig hljóðlega úr og læddi mé upp í rúm. Ég kúrði mig upp við konuna mína. Ákveðinn í að fá mér gott í kroppinn hvíslaði ég að henni, “ Það er brjálað veður úti”. Elskuleg konan mín til 10 ára svaraði strax,” Hugsaðu þér hvað maðurinn minn er heimskur að vera úti að veiða í þessu veðri”
Og þá fór allt í bál og brand….. 
...........................................................................
Ég bauð konunni minni með í helgarferð til Boston um daginn og þar fórum við á fínt veitingarhús. Einhverra hluta vegan tók þjónninn fyrst pöntunina mín. Ég sagði, og var heldur rogginn með enskuna mina,
 "I'll have the strip steak, medium rare, please."
 He said, "Aren't you worried about the mad cow?""
Ég svaraði “ Nah, she can order for herself."
Og þá fór allt í bál og brand….
...........................................................................
Við konan mín fórum á árgangsmót í gamla skólanum mínum. Þar sem við sátum tók konan mín eftir að ég horfði á konu á næsta borði. Kona þessi var vel drukkin og þambaði ótæpilega og röflaði við sjálfa sig milli glasa.
“Þekkir þú þessa konu” spurði konan mín.
“Já sagði ég, þetta er gömul kærasta og ég heyrði að hún hefði farið að drekka svona eftir að ég sagði henni upp þarna um árið”.
Konan mín leit á hana í forundran og sagði,” hver hefði trúað því að hægt væri að hafa svona ómerkilegan atburði að fagnaðarefni í öll þessi ár”.
Og þá fór allt í bál og brand….
…………………………………………………………………………………………
Um daginn varð ég 67 ára og hætti þá að vinna. Ég fór til að ganga frá öllu í sambandi við ellilífeyrinn minn. Konan á skrifstofuni bað um að sjá ökuskírteynið mitt til að staðfesta aldurinn og þá uppgötvaði ég að veskið mitt hafði orðið eftir heima. Konan sagði að þetta væri í lagi, bað mig að hneppa frá þremur efstu tölunum á skyrtunni minn. Ég gerði það og er hún sá silfurgráa englahárið á bringunni á mér sagði hún að þetta væri nóg staðfesting fyrir hana.
Þegar heim kom sagði ég konunni minni frá þessu. Hún varð hálf örg. “ Bölvaður endemis asni ertu maður, þú hefðir átt að láta buxurnar falla líka .  Ég er viss um að þá hefðir þú fengið örorkubætur út á þennan ræfil þarna niðri”.
Og þá fór allt í bál og brand….   

Offline Racer

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 2.464
    • View Profile
Re: Smá hlátur
« Reply #1 on: March 04, 2009, 17:18:25 »
þvílíkt samband.. jafnræði útí eitt að dissa hvort annað
Davíð Stefánsson
KK Member 2015 #857