Kvartmílan > Bílarnir og Græjurnar
Mustanginn, smá update á siðu2
E-cdi:
jæja. ég og unnustan min keyptum okkur Ford Mustang GT í dag.
þetta er rauður blæju mukki. 5l v8
við keyptum hann klesstan. og herna er linkur með nokkrum myndum af honum eins og hann er nuna og hvernig hann var fyrr í dag ;)
ég kann ekkert að taka myndir af cardomain lengur. svo linkur verður að duga :)
gjörið svo vel :D
http://www.cardomain.com/ride/3061706
E-cdi:
já ég gleymdi að minnast á það að ég lagaði aðeins frammbrettið á honum. setti orginal stefnuljósin á að framan því annað aftermarket ljósið var brotið.
svo tók ég spoilerinn af honum því hann var brotinn..
ég ætla með hann í bilverk BÁ á mánudaginn og sjá hvort það sé ekki hægt að rétta afturbrettið bara..
svo kaupi ég nytt skottlok. stuðara og afturljós báðum megin þegar ég á efni á því :D
Gummari:
flottur bíll og góð kaup en þú veist að hann er ekki 96 :wink:
E-cdi:
--- Quote from: Gummari on March 01, 2009, 00:36:49 ---flottur bíll og góð kaup en þú veist að hann er ekki 96 :wink:
--- End quote ---
tja framleiðslu ár/árgerð 1996. nýskráning 1996 :)
samkvæmt pappírum allavegana í hanskaholfinu..
svo hélt ég að hann væri ekin 57þús km. en hann er ekin 57þús milur :D semsagt 94þús km eða eitthvað í þá átt..
en já.. þetta voru góð kaup :D
E-cdi:
þessi bíll er samt eins og Christine :lol:
þegar við fengum hann þá voru biluð stefnuljósin á honum, en hann lagaði þau sjálfur :lol:
svo virkaði ekki flautan í honum en hann lagaði þau sjálfur :lol:
svo virkaði ekki rúðurnar farþega megin en að sjálfsögðu lagaði hann það einnig sjálfur :lol:
ég var farinn að vonast eftir því að hann myndir rétta sig og mála sig sjálfur, en hann virðist ekki ætla að gera það :lol:
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version