Kvartmílan > Leit að bílum og eigendum þeirra.
Dodge Dart ´62
crown victoria:
jæja...spyr sá sem ekki veit...
Árið 1992 átti að fara í skoðun Dodge Dart árgerð 1962. Hann virðist ekki ennþá vera mættur. Bíllinn var með númerið Ö1090 en fastanúmerið EB857 eftir því sem mér skilst best. Bíllinn var gerður upp 1977-1978 (tel ég nokkuð öruggt) og fyrir uppgerð var búið að klessa hann hægra megin að aftan. Árin 1977-? átti Jón Bjarnason í Keflavík bílinn (og hann átti hann allavega til 1987 og örugglega lengur en ég er ekki með heimildir fyrir því) og það var hann sem gerði bílinn upp. Hann var þriðji eigandi bílsins. Hér stendur fyrir framan mig "vélin er hallandi toppventlavél, 170 "kúbik" eins og það heitir. Sjálfskiptingin er s.k. takkaskipting." Gaman væri að vita hvað varð um þennan bíl því það er sagt að þetta hafi verið eina eintakið sem eftir var af þessum bílum árið 1987.
Vitneskju mína um þennan bíl hef ég úr tímaritinu Bíllinn 5.tölublað 1987 :wink:
Elmar Þór:
Er þetta svartur Dodge dart með 4 dyrum?
crown victoria:
það er rétt gleymdi að taka það fram svartur með fjórum dyrum og fjórum hurðum :D
Elmar Þór:
hann er ennþá til og ekkert í svo skelfilegu ástandi
crown victoria:
jæja það er gott að heyra það :)
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version