Kvartmílan > Leit að bílum og eigendum þeirra.

Leit að Mustang Boss 302 ´72

(1/2) > >>

JJsurprice:
Já, það er til gamall þráður hérna inná sem snerist um að finna þennan bíl.  Ég fann hann fyrir ca. hálfu ári en er búinn að týna honum aftur hehe.  hefur einhver hugmynd um hvar þessi bíll er í dag.  Er skráður sem 71 mach1 í dag ef ég man rétt.  Pabbi gamli átti hann á sínum tíma (Jón Hjálmar Jónsson) og leit hann þá svona út.  Geeeðveikur. :P



Var orðinn bílskúrsverkefni síðast þegar ég vissi, e-ð í bútum og svona.  Þakka þeim sem svara.

Jóhann Jónsson

Anton Ólafsson:
Sæll,

Þetta er nú ekki Boss,
Pabbi þinn hefur átt hann 78-80.

Hérna er þráður um hann.
http://www.kvartmila.is/smf/index.php?topic=21933.0

JJsurprice:
Nei en var með boss innréttingu held ég alveg örugglega.  Þegar hann var keyptur var sagt að það eina sem ekki væri "Boss" í honum værir vélin.  Ég þekki þetta ekki nógu vel og hef sjálfur aldrei séð bílinn svo þið snillingar segið mér.  :D

429Cobra:
Sælir félagar. :)

Sæll "Joð Joð" (vantar nafn).

Það er eitt sem að þú getur verið viss um með þennan bíl er að það er ekkert sem heitir BOSS sem að kom með honum frá verksmiðju. :!:
Síðast Mustang-inn sem bar nafnið BOSS kom 1971 og hét BOSS 351.
Það er reyndar til "prototype" af BOSS 302 1971, en sá bíll fór aldrei í framleiðslu.

Sú staðreind að þetta sé ekki BOSS Mustang, gerir hann ekki að neitt verri bíl.  :wink: :idea:

En hvað um það.

Þessi bíll er í uppgerð í Keflavík og það er verið að leita að varahlutum í hann.

Kv.
Hálfdán.

Old School:
Ég held að ég sé með sílsapústin undan honum inni í skúr hjá mér :D

Navigation

[0] Message Index

[#] Next page

Go to full version