Kvartmílan > Aðstoð
Húðun/málning á pústflækjum... Lausnir til lengri tíma!
Kiddi:
Jæja... Hvaða lausnir eru í boði hérna heima? Er enginn sem getur húðað með einhverskonar ceramic húð eða sambærilegu sem endist? Hvað með króm? Endist það eitthvað? Er einhver málning sem höndlar þetta?
Endilega koma með hugmyndir!
Kristján Ingvars:
Krómhúð á flækjum endist kannski eitthvað en hún blánar útaf hitanum og verður mjög ljót. Cheramikhúð er það albesta og flottasta en þær flækjur sem eru þannig kosta náttúrulega sitt. En svo er líka til eitthvað af sprayum sem þola hita.. ég hef sprayað pústgreinar bara með svörtu ódýru sprayi sem var ekkert sérstaklega hitaþolið að mig minnir og það hélst alveg ótrúlega vel á :wink:
Heddportun:
Ég fékk (try armor) Ceramic armor á mínar að utan,það skít virkar var að reyna að hita þær að utan til að dælda fyrir stýrisliðnum en þær voru eftir dágóðan tima bara volgar
Með endingu og flögnun þá verður að leifa húðinni að bakast við málminn áður en þú ferð að blasta græjuna,ég gerði það ekki og þær eru að verða gular of aðeins að flagna,minnir að húðin sé gefin upp í 1300°F,veit ekki með turbo annað en ryðfrítt
Kiddi:
Linkur Ari?? (fann ekki á google)
Ég þarf að smíða flækjur þannig að ég er ekki að fara kaupa ceramic húðaðar flækjur að utan. Mér finnst nú ekkert ljótt þótt krómið verði blátt og gult en byrjar þetta ekki að riðga á núll einni?
Þetta er bara á N/A chevy hænu þannig að það er ekki turbo hiti í spilinu...
Það besta væri að smíða úr stainless og hafa það bara bert.... en það er bara viðbjóðslega dýrt.
Það væri gaman að fá linka á einhver efni og reynslusögur!
Heddportun:
Fann þetta í fljótu
http://www.performancecoatings.com/index2.html
http://www.engineceramics.com/
http://www.afipowder.com/motorsports/ceramic-header-coating-armor-coating-tm/
Þær byrja jú að ryðga að innan og kemur í gegn,verðið á stáli var að hríðfalla svo það gæti lagast hef ekkert ath það betur
Hef ekkert skoðað þetta með þessar húðanir Try coating armor og ceramic coating er það eina sem ég hef skoðað,skal ath þetta fyrir þig í vikunni ef þú villt
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version