Kvartmílan > Alls konar röfl

amerískir bílar spurning

<< < (2/3) > >>

TONI:
Er ekki þráðurinn Kvartmíludót "Til Sölu/Óskast Keypt AÐEINS fyrir kvartmílu tæki og tól" fyrir svona lagað.........sem menn eru jú að misskilja verulega of hvað er orginal dót og hvað er Kvartmíludót, t.d er orginal Mustang, Camaro, impreza o.s.fr er ekki þar til gert kvartmílutæki samkvæmt mínum kokkabókum. "Ritskoðandi" mætti að mínu áliti halda uppi aga og reglum þar svo að þetta missi ekki marks, en ætti að vera hægt á stuttum tíma að ná tökum á þessu.........láta auglýsinguna bara hverfa ef hún er ekki á réttum stað, þá lærist þetta fljótt

Nonni:
Ég held að það væri ekki slæm hugmynd að hafa sér þráð fyrir eldri áhugaverða bíla óháð landi.  Þó ég sé meira fyrir ameríska (og þá sérstaklega GM) þá er hellingur af öðru dóti sem er áhugavert.  

Það eru ansi oft vísitölubílar í söludálkinum (og allt í góðu með það) og sérstakir bílar hverfa kannski í fjöldann (og færast fyrr af forsíðu).  Ég hefði t.d. meiri áhuga á að skoða 70´s Toyota en 2004 Toyota.

Kimii:

--- Quote from: TONI on December 09, 2008, 22:23:34 ---Er ekki þráðurinn Kvartmíludót "Til Sölu/Óskast Keypt AÐEINS fyrir kvartmílu tæki og tól" fyrir svona lagað.........sem menn eru jú að misskilja verulega of hvað er orginal dót og hvað er Kvartmíludót, t.d er orginal Mustang, Camaro, impreza o.s.fr er ekki þar til gert kvartmílutæki samkvæmt mínum kokkabókum. "Ritskoðandi" mætti að mínu áliti halda uppi aga og reglum þar svo að þetta missi ekki marks, en ætti að vera hægt á stuttum tíma að ná tökum á þessu.........láta auglýsinguna bara hverfa ef hún er ekki á réttum stað, þá lærist þetta fljótt

--- End quote ---

nákvæmlega

finnst ekkert fáránlegra en að sjá einhveja handónýta vél sem þeim fannst virka svo fjandi vél og jeppadekk og svona dót.

það þarf að fá svona mann í það að fylgjast með auglýsingadálknum, svona eins og vefstjóri nema bara modda sem hefur umsjón yfir þessu.

TONI:
Ég fæ MJÖG mikið af spurningum á borð við veistu um hittt og veistu um þetta og nota þessa bílaþræði mikið til að að stoða menn við að nálgast það sem vantar þannig að spjallverjar losi eigur sínar í skiptum fyrir fé en það hjálpar ekki að auglýsingarnar eru á vitlausum stað. Er einnig að benda bílasölunum og bílabröskurum á að leita að þessum þráðum ef það vantar t.d dekk, felgur, varahluti eða jafnvel bíla til að klára viðskipti, menn eru jú hér að auglýsa til að selja ekki satt og skiptir þá engu hvaðan gott kemur og þráðurinn verður virkari.

einarak:

um að gera að búa til fleiri umræðu hópa, það er nú alveg póstað 10 póstum hérna a dag  :lol:

Navigation

[0] Message Index

[#] Next page

[*] Previous page

Go to full version