Kvartmílan > GM
var að skoða flickr.com og sá malibu
Moli:
Jæja, var að fletta í gegn um þennan þráð frá 2008, og skoða gamlar skráningar, og fann út að þessi svarti á efstu myndinni er BN-114.
Hér er ein gömul mynd fyrir Jóa Sæm, Hálfdán gæti gert þessum bíl kannski aðeins betri skil! :wink:
Eigendaferill
14.2.1983 Páll Kristberg Pálsson Stararimi 41
30.11.1981 Jóhann Gunnar Stefánsson Rauðagerði 30a
11.5.1978 Sigurður Sigurðsson Krosseyrarvegur 5
7.4.1975 Ragnar Emil Sigurjónsson Breiðavík 29
Skráningarferill
16.10.1991 Afskráð -
1.1.1900 Nýskráð - Almenn
Númeraferill
9.7.1985 H684 Gamlar plötur
8.12.1981 R31305 Gamlar plötur
11.5.1978 R50088 Gamlar plötur
7.4.1975 Y1121 Gamlar plötur
429Cobra:
Sælir félagar. :)
Já það er þessi blessaða Chevelle-a.
Það var skólafélagi minn Jóhann Gunnar sem að keypti þennan bíl 1981 og hann keppti á honum í kvartmílu 1982 og að mig mynnir 1983.
Þá klessti hann bílinn (ekkert alvarlega) en ákvað að gera hann upp.
Það voru nokkrir félagar þá með húsnæði á Grettisgötunni og þar var byrjað á uppgerðinni.
Ég man að víniltoppurinn var rifinn af bílnum og þá kom í ljós skemmd eins og að bílnum hefði verið vellt eða að hann hefði fengið mikið högg á hliðina, ljósastaur gæti verið ástæðan.
Jóhann seldi bílinn áður en hann gat gert mikið meira en að rífa hann, en bíllinn var með 350cid vél að mig minnir 4. hólfa blöndung og ég held að Jóhann hafi sett á mótorinn flækjur.
Bíllinn var ekki original SS heldur hafði eigandinn á undan Jóhanni sett SS í grillið vegna þess að það voru upphafsstafirnir í nafninu hans (Sigurður Sigurðsson).
Það er gaman að vita að þessi bíll sé enn þá til og í vinnslu.
Myndina sem að Moli setti hér inn tók ég í Safamýrinni 1981 þegar Jóhann var nýbúinn að fjárfesta í "Pro-Track 50" dekkjum og var að prófa þau. 8-)
Kv.
Hálfdán. :roll:
Navigation
[0] Message Index
[*] Previous page
Go to full version