Kvartmílan > Leit að bílum og eigendum þeirra.
enn ein 3rd gen leitin
Toni Camaro:
veit enhver hvar þessi er og ástand
Moli:
Ég tók allavega þessa mynd fyrir um 2 árum á móts við Mótorstillingu inn í Garðabæ, áður hafði þessi bíll staðið heillengi á Grundarfirði við Aðalgötuna í gegn um bæinn.
Líndal:
Ég er nokkuð viss um að það var 84 Firebird með númerið KD-484 sen stóð lengi á Grundarfyrði. Sá er nú við Laugarvatn minnir mig. En ég veit ekkert um þennan Camaro.
Moli:
--- Quote from: Líndal on November 14, 2008, 20:26:37 ---Ég er nokkuð viss um að það var 84 Firebird með númerið KD-484 sen stóð lengi á Grundarfyrði. Sá er nú við Laugarvatn minnir mig. En ég veit ekkert um þennan Camaro.
--- End quote ---
Það er rétt, en Firebirdinn stóð alveg út við enda bæjarins, og það er rétt um ár síðan. Þessi stóð hinsvegar við Aðalgötuna þegar þú keyrir inn í bæinn austan megin frá. Það eru um 3 ár síðan þessi Camaro fór úr Grundafirði. Fastanúmerið var á límmiða neðst á vinsta horni (bílstjórameginn) stuðarans. Sést móta fyrir 2 stöfum þar á myndinni.
íbbiM:
þessi camaro er v6 minnir mig, late model,
hann lenti í tjóni sona 03/04 og fór í viðgerð þarna, og þessi mynd hefur verið tekin 2006 en þá lagaði kunningi minn afturbrettin á honum, bíllinn var mjööööög llengi þarna
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version