Sælir félagar.
Sæll Kristján.
Ég talaði við Tim í dag og þá benti hann mér á þessar myndir sem eru inn á
http://www.murrayauto.com/ ásamt öðrum flottum myndum sem er teknar á brautum í mið og suður Florida.
Bíllinn er ekki tilbúinn og er þar af leiðandi ekki búið að prófa hann.
Tim var ekki viss um að hann myndi prófa bílinn, en þessi mótor er búinn að fara 9,5 sek í 4000 punda bíl.
Hann er búinn að vera um fimm ár að smíða þennan Fairlane og nú sér hann loks fyrir endann á því, og er nú þegar kominn með annað verkefni, en það er 1970 Mercury Cyclone Spoiler 429 SCJ.
Svo má ekki gleyma dráttarbílnum sem er Ford Lightning sem verið er að setja í "twin turbo".
Kv.
Hálfdán.