Author Topic: Chevrolet Malibu 1978. "Þ 1300" uppgerð  (Read 3074 times)

Offline Weiki

  • Playing NHRA on playstation
  • *
  • Posts: 48
    • View Profile
Chevrolet Malibu 1978. "Þ 1300" uppgerð
« on: September 16, 2008, 21:21:26 »
Jæja ætla reyna setja inn nokkrar myndir af verkefninu hans pabba. Þetta er 78 malibu. Var með númerið Þ-1300 að mig minnir. En hérna smá infó af því hvernig þetta allt byrjaði.

Pabba var boðinn 78malibu gefins. Þetta var grænn bíll með grænni inréttingu. Var hann búinn að standa í nokkur ár inni í hlöðu. Átti að hafa farið í gang fyrir nokkrum árum án vandræða og átti að vera í þokkalegu standi. Var farið og gripurinn skoðaður. Leit þokkalega út en myrkvið getur blekkt margan manninn. Seinna var farið og náð í gripinn, þegar komið var út í dagsljósið sást að þetta yrði nú frekar erfitt og tímafrekt verkefni. Bílinn var meira ryðgaður en haldið var og gömul boddy viðgerð að aftan samanstóð af fullt af hnoðum.
En árar voru ekki lagðar í bát. 2 öðrum bílum var reddað í í varahluti, einum 78malibu og einum klesstum 82(að ég held).

78 varahlutabílinn var grár með rauðri innréttingu og var í 10sinnum betra standi en sá græni og var ákveðið að hann yrði bíllinn sem gerður yrði upp. Var meira segja keyrður að sunnan alla leið heim í dali. Brúni klessti kom svo með hraðþjónustu HR.Sigurðar Lárussonar sem að var sá sem reddaði báðum bílunum.

Svo hófst uppgerð. Flest var nothæft úr þeim grá, einverjir smáhlutir teknir úr þeim græna, grindin úr þeim brúna var sett undir þar sem hún var heilegust, stykki skorið úr fyrir ofan framrúðu á þeim brúna og fært yfir, vínyl toppurinn fékk að fjúka, allt sandblásið og sprautað(grind líka).

305 VÉLIN úr þeim gráa var notuð og sett á hana nýupptekin 350 skifting.

Bílinn var svo allur sprautaður svartur. Á bara eftir að koma á hann húddi núna. En já hvað með smá myndir??


Líffæragjainn og upphafið af þessu öllu



Sá grái(uppgerðarbílinn)


Smá ryð svonna




Sá brúni sem grindin var notuð úr










"Malibu kerra" Kallinn var að sprauta hurðir og fleira þannig að gripnum var breytt í kerru og skellt ínní skúr hjá mér á meðan á sprautun stóð yfir.
« Last Edit: September 16, 2008, 21:58:03 by Weiki »
Hjörtur V. Jörundsson

Camaro Z28 1996
Patrol 350Tbi 44"(stuttur) 1989
Toyota carina-E 1.8 1997

Offline trommarinn

  • Pre staged
  • ****
  • Posts: 393
    • View Profile
Re: Chevrolet Malibu 1978. "Þ 1300" uppgerð
« Reply #1 on: September 16, 2008, 22:18:20 »
Svalttt ekkert smá flottir bílar 8-)líst vel á þetta :)
Þórhallur Guðlaugsson

chevorlet c10 1965
patrol 38" 1994
mustang v8 2001
subaru 1800 86' turbo
Dodge ram '95 1500 bsk.

Offline Camaro-Girl

  • Pre staged
  • ****
  • Posts: 445
    • View Profile
Re: Chevrolet Malibu 1978. "Þ 1300" uppgerð
« Reply #2 on: September 16, 2008, 22:40:17 »
Geggjaðir bílar gangi ykkur vel
Tanja íris Vestmann

Offline MALIBU 79

  • Pre staged
  • ****
  • Posts: 298
    • View Profile
Re: Chevrolet Malibu 1978. "Þ 1300" uppgerð
« Reply #3 on: September 18, 2008, 22:27:58 »
til hammingju með malibuinn. Minnir mig alveg rosalega á minn 79 malibu :D
Alexander Karlsson
Chevy Malibu '79 350
Chevy Camaro '85 350
Dodge ram '89 318

Offline ADLER

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 836
  • Drive on....
    • View Profile
Re: Chevrolet Malibu 1978. "Þ 1300" uppgerð
« Reply #4 on: September 19, 2008, 01:50:40 »
Er ekki alveg hellingur af  afgöngum sem væri hægt að nýta? mér vantar alltaf grind sem er heil frá miðju og aftur úr.
Það er ágætt að vera með nokkrar lausar skrúfur.
Adler Stevens  543 4200
*****************
Support your Local Mechanic
Buy a Ford .
*****************

Ashes to ashes
Dust to dust
If it wasn't for Fords
Our tools would rust.
***************

Offline HK RACING2

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 971
    • View Profile
Re: Chevrolet Malibu 1978. "Þ 1300" uppgerð
« Reply #5 on: September 21, 2008, 19:43:56 »
Lýst vel á þetta,alveg magnað hvað þetta eru skemmtilegir bílar,átti einn svona frá 18 ára aldri og aðeins frameftir,hann var vínrauður með svona rauðri innréttingu og alveg magnað hvað þeir endast,er ekki alveg að fíla þennan svarta lit á honum en held að hann venjist vel þegar bíllinn er klár,endilega fá fleiri myndir þegar hann er tilbúinn.
Hilmar B Þráinsson
Camaro SS 1970
BMW S2000 powered
Evo 7 rallý
Chevy Van 1978
Er að rífa Evo Corvette Camaro og fleiri...