Kynnið ykkur Facebook síðu klúbbsins
Lögreglumaðurinn sem réðst á pilt í apríl síðastliðnum er enn við störf hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, að sögn Geirs Jóns Þórissonar yfirlögregluþjóns.Ríkissaksóknari hefur ákveðið að gefa út ákæru á hendur manninum. Á myndskeiði á vefnum YouTube sést maðurinn taka ungan pilt kverkataki í verslun 10-11 í Grímsbæ. Geir Jón sagði í samtali við Vísi að það væri alfarið í höndum Ríkislögreglustjóra að taka ákvörðun um hvort manninum verði vikið úr starfi. Guðmundur Guðjónsson, yfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra, segir að búið sé að kalla eftir gögnum frá Ríkissaksóknara vegna málsins. Ákvörðun verði tekin um framtíð lögregluþjónsins eftir að búið verður að fara yfir þau gögn.
Þetta eru mennirnir sem eru að berjast fyrir því að fá að nota taser í vinnunni sinni...
Quote from: baldur on September 04, 2008, 07:54:32Þetta eru mennirnir sem eru að berjast fyrir því að fá að nota taser í vinnunni sinni... Guð hjálpi okkur þá.