Kvartmílan > Bílarnir og Græjurnar

Ford Sierra RS Cosworth

(1/2) > >>

Leon:
Veit einhver hvar blái Ford Sierra RS Cosworth bíllinn er í dag?
Og á einhver mynd af honum?

Gilson:
hann er í eigu stráks sem heitir ólafur. Kom á okkar ástkæru braut um daginn og virkaði ekki neitt, eitthvað að stríða honum. Hann var til sölu í febrúar á 690 þúsund.



Olafur_Orn:
Það mun víst vera ég, já hann var ekki að virka neitt þar sem að bensíndælan er búin að varpa öndinni og dempararnir afturí algjörlega kapút!
Bróðir minn er skráður eigandi en þar sem hann hefur ekki tíma í þetta lengur þá eignaði ég mér bílinn og er að reyna að koma honum í lag,.. gengur sennilega betur þegar ég fæ bílskúrinn aftur  ](*,)
Bíllinn er enþá til sölu og þarfnast náttlega smá aðhlinningar boddylega séð, væri fínt að sjá hann fara í hendurnar á einhverjum klárum þar sem ég má eginlega ekki vera að þessu lengur vegna skólans.
Vélin er í topp standi fyrir utan bensíndæluna.

Ef þú villt vita meira þá er bara að hringja á mann..

S:8489609

GREIFINN:
var ekki þessi bill einhver haugur af hestöflum ?

íbbiM:
synd að sjá, meðað við hversu mikil vinna fór í þennan bíl, efnilegur samt

Navigation

[0] Message Index

[#] Next page

Go to full version