Sælir, takk fyrir ábendingarnar,
Ég fór til bólstrarans á Langholtsveginum og fekk þetta fína efni, kemur í 140cm og meterinn á 2500kr, ég keypti tvo metra.
Hérna er ég búinn að bólstra toppklæðninguna og hátalaraspjöldin og er bara hæst ánægður með árangurinn. Ég held satt að segja að þetta hafi örugglega ekkert verið neitt mikið betra þegar þetta var nýtt
Ég á eftir að klæða sólskygnin en þau þurftu aðeins meiri athygli því þau voru hreinlega orðin að dufti fyrir innan klæðninguna
:
Ekki láta blekkjast af kuskinu sem er á efninu, það ryksugast auðveldlega í burtu þegar límið er þornað.