Ég sagði mig úr stjórn fyrir 3 dögum eða svo vegna anna. Ég því miður hef ekki tíma til að sinna mínu starfi í stjórn eins vel og ég hefði viljað svo ég ákvað að segja mig úr stjórn svo næsti varamaður komist inn. Axel var búinn að segja sig úr stjórn einu degi eða svo á undan mér og kom Kiddi J inn fyrir hann. Axel var einnig með of mikið á sinni könnu til að geta sinnt þessu. En næsti varamaður er Sigurjón Andersen. Svo ég býst við að hann detti inn í stjórn þar sem hann er jú varamaður
En allavega, ég vildi bara að það vissu allir af þessu málum.
Ég er ekki í neinni fílu útí neinn eða neitt vesen. Bara of mikið að gera, en ég mæti klárlega á öll event sem ég mögulega kemst á. Ég mæti á keppni á morgun og eins og síðustu ár, vonandi á allar æfingar, keppnir og vinnudaga.
Takk fyrir mig..
Valbjörn