Sælir félagar.
Ég veit að það finnst ekki öllum flottir Javelin/AMX bílarnir frá 1971-1974, reyndar skiptast menn í tvo flokka með þessa bíla öðrum finnast þeir ljótir en hinum finnast þeir flottir.
Já mér finnast þessir bílar flottir enda búinn að vera með bróður mínum í þessu síðan hann eignaðist sinn fyrsta Javelin sem er 1974 árgerð fyrir um 25 árum, og hann á þann bíl ennþá.
En þó að þessar árgeðir af AMC Javelin séu umdeildar í útliti og að nokkrir aðrir bílar frá AMC séu vægast sagt umdeildir, þá þýðir það ekki að allir bílar og árgerðir frá þessum framleiðanda séu það.
Við getum tekið nokkur dæmi:
Þá er kanski fyrst að nefna þenna bíl hér að ofan sem er "bara" Rambler American sem búið er að breyta frá verksmiðju í þetta tæki sem kallast: Hurst/SC Rambler líka oft kallaður Scrambler.
Hann er með 390cid (6,4L) vél sem er 315hö 3,54:1 læst drif og Borg Warner 4. gíra kassa með Hurts skipti.
Þessir bílar voru í 13 sek á mílunni sem að þótti nokkuð gott 1969 þegar þeir voru framleiddir, og þess vegna voru þeir líka oft kallaðir "Pocket Rocket" enda álíka stórir og 1966 Chevy II.
Það sama má segja um þenna bíl sem að heitir AMC Rebel Machine og var framleiddur 1970.
Hann er með 390cid (6,4L) vél sem er 345 hestöfl, það var hægt að fá"The Machine" bæði sjálfskiptann og beinskiptann.
Litasamsettningin á þessum bílum þótti ein sú flottasta á "Muscle Car" og þykir enn.
Það var líka hægt að fá "The Machine" í örðum litum og þá ekki með strípum.
Þessi bíll er í sama stærðarflokki og 1966-1967 Fairlane, 1968-1970 Roadrunner/Charger og 1964-1967 Chevelle/LeMans/GTO.
1968 Javelin SST.
1969 Javelin SST.
1970 Big Bad Javelin.
Þessar þrjár árgerðir af Javelin sem er "stóri bróðir" AMX voru þær fyrstu og voru í samkeppni við Mustang, Camaro, Firebird, Barracuda og Challenger.
Sem sagt svokallaður "Pony car" .
Það var hægt að fá Javelin með nokkrum vélarstærðum minnst var 290cid (4,9L) til 1970 þá 304cid (5,0L) eftir 1970, 343cid (5,6L) frá 1968-1970 360cid (5,9L) frá 1970, 390cid (6,4L) 1968-1970, og síðan 401cid (6,6L) frá 1970.
Að öðru leiti var þetta eins og með aðra "Pony car" bíla að þú gast ráðið nánast öllu um lit að inna og utan og síðan með hvaða kram bíllinn ætti að vera.
Eftir 1970 þá breyttist Javelin-inn og stækkaði eins og Mustang, Camaro og aðrir "pony car" bílar:
1971 Javelin/AMX
1972 Pierre Cardin Javelin. Cardin hannaði innréttinguna í bílinn, þessir bílar eru gríðarlega sjaldgæfir í dag.
1972 Javelin/AMC. Annað grill fyrir AMX gerðina.
1973 Javelin. Eina breytingin er grillið.
Og svo kom síðasta árgerðin af Javelin sem er 1974.
Árgerirnar 1971-1974 voru fáanlegar allt frá 258cid (3,7L) Línu 6cyl, 304cid (5.0L), 360cid (5,9L) og 401cid (6,6L).
Hér er teikning af hugmyndabíl byggður á 1968-9 Javelin og AMX.
AMX var tilrauna bíll hjá AMC og var á árunum 1968-1970 annar af tveimur tveggja sæta bílum sem að voru framleiddir í Bandaríkjunum, hinn var Corvette.
Þessir tveir bílar voru samt ekki í sama flokki, og var Corvett skilgreindur sem Sportbíll en AMX sem "Muscle Car"
Frá 1968 og til 1970 var AMX tveggja sæta en eftir 1970 og til 1974 var Javelin boddýið notað með smávegis útlitsbreytingu.
AMX hélt áfram að vera til eftir 1974 en þá var notað Hornet og síðan Spirit boddý fyrir þennan bíl sem að var þá yfirleitt með útlitsbreytingar og aðrar vélar en original bíllinn.
Allar þær vélar sem að fáanlegar voru í Javelin voru fáanlegar í AMX að undanskildri 6 cyl vélinni frá 1968-1974.
1968 AMX.
1969 AMX
1970 AMX
1971-1974 AMX. Þessar árgerðir voru svo til eins.
1975-1977 AMX (Hornet)
1978 AMX (Concord boddý)
1979 AMX (Spirit Boddý)
1980 AMX Var síðasta árgerðin af AMX og var aðeins fáanlegur 6cyl 258cid.
Hægt er að sjá meira um þetta inn á:
http://www.javlinamx.comÉg fékk flestar myndirnar að láni þar.
AMC smíðaði líka nokkra svokallað "Sleeper" bíla og er að ég held eini framleiðandinn í Bandaríkjunum sem að gerði það.
Það voru til að mynda Hornet SC með 360cid (5.9L) vél og Gremlin X sem að var fáanlegur með sömu vél.
Þetta eru myndir af Hornet SC 1971.
Það er hægt að lesa meiru um þennan bíl á:
http://musclecars.howstuffworks.com/classic-muscle-cars/1971-amc-hornet-sc-360.htm(fékk myndirnar þar)
Gremlin X.
Það má alveg segja frá því að Walley Booth átti heimsmet í ProStock flokki hjá NHRA á Gremlin með 360cid vél í kringum 1980, og Richard (Dick) Maskin smíðaði vélarnar fyrir hann.
Maskin er að enn þann dag í dag og smíðar vélar í ProStock sem að þykja einar þær aflmestu og bestu í dag.
Það má ekki hætta þessu nema að sýna eina mynd af AMX III bílnum sem að var tilraunabíll hannaður í Ítalíu og var með 390cid (6,4L) AMC vél í miðjum bíl.
Sem sagt ekta "Supercar".
Hér er hægt að lesa meira um þessa bíla:
http://www.conceptcarz.com/vehicle/z1749/AMC_AMX_III.aspxÉg vona að allir hafi gaman af, og kanski sjái AMC í nýju ljósi.