Citröen Saxo VTS 16vNýskráður 1.6.2001
Silfurgrár
1600cc DOHC 120hö
5 gíra
Framhjóladrifinn
970 kg
Fastanr: LV434
Ekinn rúmlega 92.000 km.
Skoðaður 07 og átti að fara í skoðun fyrir tæpu ári síðan.
Nánari lýsing:Mjög sprækur og skemmtilegur snattari. Er á smekklegum 16" OZ álfelgum með sumardekkjum á. Glæný ónelgd vetrardekk á 14" álfelgum fylgja með. Bíllinn er með rafmagn í rúðum, handknúni gler topplúgu, ABS bremsum, ljóskösturum í stuðara, vökvastýri, hvítum mælum, vatns- og olíuhitamæli í mælaborði, Sony MP3 CD spilara og nýjum Kenwood hátölurum allan hringinn sem keyrðir eru af Rockford Fosgate magnara í skottinu. Undir bílnum er flottur Remus endakútur með nýsmíðuðu pústi frá hvarfa.
Skipt var um tímareim hjá Brimborg í sumar. Nótur fylgja.Það sem að er að:> Ónýtir mótorpúðar sem valda miklum víbring við snúning vélar.
> Setan afturí
(hluti sætisins sem rassinn á þér snertir) skemmdist vegna einhvers efnis sem komst í hana og var hent í ruslið fyrir nokkrum mánuðum síðan. Bakið er enn í lagi.
> Air Bag ljósið kviknaði í mælaborðinu fyrir stuttu og hefur lýst síðan.
> Þarf að herða handbremsu.
> Smá smit frá ventlalokspakkningu.
Þar sem að maður hefur lítinn tíma, þá vil ég helst losna við hann í núverandi ástandi, sem
fyrst.
Tilvalið tækifæri fyrir handlagna að ná sér í skemmtilegan bíl á lítinn pening.Viðmiðunarverð skv. Bílgreinasambandinu er 482.000 kr.
Nú er bara að bjóða! (Helst pening og alls ekkert sem þarf að borga tryggingar af)Anton
s: 8207101
e: rufuz1 at internet punktur is






