Kvartmílan > Bílarnir og Græjurnar
Merkilegar myndir #11
íbbiM:
ég átti líka econoline 8)
nenei maður er bara að reyna ná upp smá sveiflu :lol:
ég t.d er mjög hrifinn af ford pikkupum
Sigtryggur:
Jæja strákar!!Er nú enn einu sinni farið að velta sér upp úr Cudunni hans Stjána :roll: Menn hafa hér á spjallinu verið að velta sér upp úr þvi,hvers vegna svona sé komið fyrir þessum bíl!Málið er einfalt!!!Ekki svo löngu eftir að Stjáni eignaðist bílinn dæmdi hann boddyið á honum ónýtt,allavega það ílla farið að spurning væri hvort borgaði sig að gera við það.Eins og komið hefur fram hér á spjallinu þá var honum ekið út af Keflavíkurveginum og skemmdist undirvagninn gríðarmikið þ.á.m burðarvirki og botnplötur,Hef ég heyrt þá lýsingu að framendinn hafi vísað til himins,svo ílla kiknaði bíllinn.Ekki var vel gert við bílinn eftir þetta tjón,og náði hann aldrei t.d. hjólastillingu eftir þetta.Þess ber að geta að Stjáni keyfti bílinn eftir þessa "viðgerð".Stjáni notaði bílinn eitthvað fyrir austan en lagði honum síðan vegna bilunar og ákvað að láta hann bíða betri tíma.Upp úr 1980 flutti hann suður til Reykjavíkur til að læra bifreiðasmíði og síðan bílamálun þannig að árin hér fyrir sunnan urðu allnokkur,á meðan beið Cudan heima á Djúpavogi.Á þessum tíma áskotnaðist honum annað boddy af ´74 Cudu(340-4spd)sem var miklu heillegra og ákvað hann þá endanlega að framkvæma "rebody" á bílnum.Nú kunna einhverjir að kveina að hann sé þá ekki lengur "numbermatching" Og ??? Við hér á klakanum höfum nú ekkert endilega verið að velta okkur upp úr þessháttar fyrr en á allra síðustu árum,og alveg örugglega ekki á þessum tíma.
Stjáni kemur til með að gera bílinn upp :!: Hvort á því verður byrjað á næsta ári eða eftir 10 ár veit aðeins Stjáni.Hitt veit ég að hann hefur verið að viða að sér hlutum í hann undanfarin ár.
Hér hafa menn líka fullyrt að hann vilji ekki selja bílinn,sumir jafnvel sagt að þeir hafi boðið allnokkrar fjárhæðir í hann.ÞETTA ERU ÓSANNINDI!!!Ég hef ,ásamt öðrum spurt hann sjálfan um þetta :smt093
Ég efast ekki eitt andartak um að Stjáni sé fær um að gera bílinn upp.Drengurinn er völundur í höndunum hvort sem um er að ræða viðgerðir eða nýsmíði og sama er hvort er járn eða tré.
Stjáni myndi aldrei svara fyrir sig hér,en mér rennur blóðið til skyldunnar þar sem ég hef þekkt hann í rúm 25 ár,síðan við vorum saman í bekk í Iðnskólanum og þekki ég hann af góðu einu.
GLEÐILEGA PÁSKA
57Chevy:
Sigtryggur þessi mynd kom í þessari myndasyrpu sem ég hev verið að setja hér inn. Þó ég havi sagt að mér findist synd að hún stæði úti, það á við alla gamla bíla sem ég sé og veit af. Ég vona að Stjáni vinur þinn geri þennan bíl upp, hvenar sem það verður. Þó ég sé ekki Mopar maður, þá finst mér þetta fallegir bílar. Kv. Gussi.
P.S. Veistu hvort bíllinn undir seglinu á Djúpavogi er enn á samastað og ó hreifður :?:
Anton Ólafsson:
--- Quote from: "Sigtryggur" ---Hér hafa menn líka fullyrt að hann vilji ekki selja bílinn,sumir jafnvel sagt að þeir hafi boðið allnokkrar fjárhæðir í hann.ÞETTA ERU ÓSANNINDI!!!Ég hef ,ásamt öðrum spurt hann sjálfan um þetta :smt093
GLEÐILEGA PÁSKA
--- End quote ---
Ég var nú bara við hliðina á Stefáni (Dodge) þegar hann hringdi austur og vildi fá hana keypta, þetta var áður en hann flutti sína inn, og hann ræddi það fullkomnlega við hann að hann vissi að það væri ekki verið að tala um klink, heldur innfluttnigs verð ++++.
Þannig að ég er ekki sammála því að þetta séu ósannindi!
Sigtryggur:
Þetta var svarið sem ég fékk frá Stjána þegar ég hitti hann á fimmtudagskvöldi hjá Krúsers,sennilega sumarið 2006 og var þetta síðan áréttað við mig frá öðrum aðila fyrir fáum dögum.Hefur einhver gert honum tilboð í bílinn?Eða hafa menn aðeins "rætt"verðhugmyndir.
Þessari skammarræðu minni var ekki endilega beint gegn þræðinum núna,frekar gegn því hvernig umræðan hefur verið gegnum tíðina um bílinn og eiganda hans :smt086
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
[*] Previous page
Go to full version