Kvartmílan > Leit að bílum og eigendum þeirra.
Malibu
cv 327:
Sæll Hálfdán.
Þetta er rétt hjá þér. Þekki gripinn í þessu útliti. :D
Man ekki nákvæmnlega hvenær þessi bíll var seldur á Selfoss eða hvort Ingimar keypti, en ég var aðstoðarmaður hjá keppanda þessa bíls.
Eigandi þá var Hafsteinn Björgvinsson, en hvaða ár man ég ekki alveg "80 eða"81. :oops:
Getur verið að Hafsteinn sé þarna á ferð en ekki Ingimar? :?
Áttu nokkuð fleiri myndir af bílnum?
Kv. Gunnar B.
429Cobra:
Sælir félagar. :)
Sæll Gunnar.
Það má meira en vel vera að Hafsteinn sé þarna á bílnum.
Þeir komu tveir saman Þessi Chevelle og síðan AMC Matador með 360cid sem að Pétur Jensson var á.
Ég man eftir því að Ingimar kom með þennan bíl upp á braut á bílpalli sennilega 1982-3.
En er spurning hvort að Jakob Sæmundsson hafi einhvertíma átt þennan bíl?
Ég man allavega að Ingimar keypti 1971-2 Chevelle silfurgráa með svörtum röndum af honum.
Guðmundur Kjartansson gæti sennilega varpað ljósi á þetta!!!!????
429Cobra:
Sælir félagar. :)
Hér kemur myndir af Chevelle vs Matador:
cv 327:
Sæll Háldán.
Við komum nú bara einbíla, keyrandi úr Garðinum. Nýbúnir að skvera bílinn. Vorum alveg að ærast, því við keyrðum alla leið með opnar flækjur, :spol: sem við settum í kvöldið áður. :D
Kv. Gunnar B.
429Cobra:
Sælir félagar. :)
Sæll aftur Gunnar.
Það er örugglega rétt hjá þér, það sem ég man eftir er að þessir tveir bílar komu hver á eftir öðrum og margir voru að tala um að þeir væru í samfloti.
En það er alltaf gaman að heyra réttu sögurnar svona um það bil þrjátiu árum seinna. :smt003 :smt005
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
[*] Previous page
Go to full version