Þá er það opinbert, ég gef ekki kost á mér til frekari setu í stjórn félagsins. Ýmislegt hefur breyst hjá mér síðan ég gaf kost á mér fyrst árið 2004, börnum hefur fjölgað úr einu í þrjú og svo hefur vinnan líka breyst, kominn í aðra vinnu.
Ég vil þakka öllum sem ég hef starfað með á þessum 3 1/2 ári í stjórn eða á æfingum og vinnu við brautina, á bílasýningum og keppnum. Ég vil líka þakka öllum sem hafa keppt og æft á þessum tíma.
Það er líka þannig að þegar menn standa upp myndast pláss fyrir nýtt fólk sem kemur ferskt inn með hugmyndir og krafta. Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram til stjórnar félagsins skulu endilega mæta á aðalfundinn og láta ljós sitt skína.
Kv. Nóni