Kvartmílan > Aðstoð
Bráðvantar að koma gömlum Mustang í sprautun!!
Pababear:
Sælir ég er með gamlan mustang sem sem mig langar að sprauta og gera flottann en mig vantar að finna einhvern sem er góður sprautari og er sanngjarn á prísinum eða hefur kannski áhuga á að taka bíl/jeppa í skiptum fyrir vinnu þar sem maður á nokkra, þá er um að gera að senda póst ef menn vilja vinna sér inn auka pening, en ég vona til að heyra frá einhverjum hérna á síðunni þar sem þetta er tæki sem ég er að gera upp er til að geta tekið þátt í kvartmílunni næsta sumar.
Kv Ómar K.
Pababear:
Koma svo!!!
Það hlýtur einhver að vita um einhvern sem hefur gaman af svona vinnu:)
cv 327:
Veit kanski um einn, hafðu samband.
Kv Gunnar B. 847-3768
Moli:
Veit um einn sem væri mögulega til í þetta. Sendi þér símann í einkapósti.
Hvaða Mustang er þetta annars?
Pababear:
Já sæll Moli, ég er að fá undir hendur Fox body Mustang sem er á þeim skemmtilega aldri að vera jafngamall mér eða 1982 módelið og langar að gera hann skemmtilegann fyrir sumarið þó svokallaða budgetið sé ekki það stærsta þá getur maður byrjað smátt og fært sig svo áfram með kramið og annað þegar boddýið er komið í lag, þrátt fyrir að vera ekki meðal þeirra fríðustu Mustanganna í gegnum tíðina þá er hægt að gera þetta að grimmdarlegu og skemmtilegu tæki :)
Kv Ómar K.
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version