Kvartmílan > Bílarnir og Græjurnar
Drop DEAD AWESOME!!! á ebay
Maverick70:
--- Quote from: "einarak" ---Þetta er einsog tannlaus mella með þetta gat í stuðaranum
--- End quote ---
en það er enginn stuðari á bílnum, þetta er svuntan :lol:
429Cobra:
Sælir félagar. :)
Sæll Kiddi.
Nei þetta á ekki að vera Shelby clone, heldur ætla ég að reyna að gera úr honum eitthvað í líkingu við Mustang race car bílana sem að flestir sjá ekki mun á og Shelby. :wink:
Sennilega 90% af þeim bílum af þessari árgerð (1965)sem eru á myndum og/eða menn sjá eru Mustang ekki Shelby.
Það var þá eins og nú að menn keyptu boddý frá verksmiðju til að nota í keppnisbíla, og það sama gerði Shelby, þeir keyptu boddý af Ford og smíðuðu Shelby Mustang [Cobra]. :!:
En það skemmtilegasta sem mér þykir með Mustang er að slagorðið var að þetta væri bíll sem væri "hannaður af kaupanda sínum".
Það er að kaupandinn gat ráðið svo miklu um hvernig bíllinn var útbúinn að það voru VARLA tveir bílar eins (hlítur þó að vera vegna þess mikla magns sem var ungað út af þessum bílum 1964-6, rúmlega 1,6mills). :shock:
En það er einmitt það sem mig langar að gera við þennan 1965 Fastback, og það er að gera bílinn eins og MIG langar að hafa hann. 8)
Og ég er að vona að það hafist. [-o<
Moli:
Hreint út sagt sjúklega fallegur!!! 8)
Kiddi:
OK, flott mál... Hvernig mótor og gírkassa á að notast við? Komu Shelby bílarnir ekki líka svartir með gullröndum?
429Cobra:
Sælir félagar. :)
Sæll aftur Kiddi.
Til að byrja með verður að öllum líkindum 289cid í bílnum og sjálfskipt, bara vegna þess að ég á allt í 289cid vél og ég á C4 skiptingu.
Hvað varðar málninguna, þá á hann að verða blár með hvítum röndum. 8)
Svona svipaðann þessum hér að neðan.
Þeir bílar frá Shelby sem voru svartir með gylltum röndum voru allir bílaleigubíla hjá Hertz.
Já árið 1966 gast þú leigt þér Shelby GT350H :shock:
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
[*] Previous page
Go to full version