ţetta er sami bíll og ţú er ađ tala um
Dodge Carry All ˝ ton 1940
Ţessir bílar eru međ 6 sílindra flathedd vél, 4ra gíra kassa og einföldum millikassa ţ.e. ekki lágt drif. Ţennan bíl keypti Ingólfur af Norska herliđinu í Reykjavík í september 1945. Nokkrir Norskir hermenn höfđu ţá tekiđ hann í leyfisleysi og fariđ út ađ skemmta sér og fengiđ heldur mikiđ af óţekktum vökva og ökuferđin endađi út í skurđi, ţar lenti bíllinn á stórum steini og einnig símastaur. Ástand bílsins var ţá ţannig ađ framhásingin var laus og lá langsum undir bílnum, annađ grindarhorniđ ađ framan mikiđ bogiđ og efri endinn á staurnum sem hékk í vírunum hafđi lamiđ bílinn ađ aftan. Ţarna keypti Ingólfur bílinn og flutti hann á verkstćđi Sveins Egilssonar viđ Hlemm, en Ingólfur vann ţar ţá, ţegar bíllinn hafđi stađiđ nokkra daga á planinu hjá verkstćđinu fóru ađ hverfa úr honum ýmsir lauslegir hlutir m.a. báđar hurđirnar og dekkin, kom ţá í ljós ađ ţarna voru ađ verki íslendingar ađ redda sér varahlutum af ţví ţeir héldu ađ herinn ćtti bílinn en ţegar ţeir fréttu ađ Ingólfur vćri eigandinn ţá fóru hlutirnir ađ skila sér aftur, ţađ kom allt nema önnur hurđin og ţađ gekk meira ađ segja eitthvađ af. Ingólfur byrjađi strax ađ gera viđ hann og var fljótlega farinn ađ aka honum, í fyrstu á 20" felgum og dekkjum af gamla Ford. Ţegar ţau Ingólfur og Kristbjörg fluttu norđur um voriđ ´46 fylgdi gamli Dodds auđvitađ međ, hann var ţá eini fjórhjóladrifni fólksflutninga bíllinn í sveitinni og lenti ţess vegna í mörgum slarkferđum í misjöfnu veđri og fćrđ. Hann var í fullri notkun fram undir 1970 en síđan hefur hann átt náđugri daga og hann er nú í ţví ástandi sem hann var í ţegar hćtt var ađ nota hann, en hann var málađur og snyrtur ađ innan í kringum 1993. Ţess má geta ađ reikningarnir og tollskýrslan er til frá ţví ađ Ingólfur keypti bílinn.
http://ystafell.is/default.asp?sid_id=31344&tre_rod=001|004|&tId=1