Kvartmílan > Bílarnir og Græjurnar

Fallegustu E-body: 70 Challenger og 71 Cuda

(1/2) > >>

440sixpack:
Þetta myndbrot er gaman að skoða fyrir Mopar unnendur
http://www.youtube.com/watch?v=qRl54Zo4z9w&feature=related

Gilson:
þessi challi er náttúrulega bara  :worship: og ekki er cudan verri  :excited:

1966 Charger:
Fallegir bílar en..... full rólegt.

Þá er þetta nú betra; engin önnur en Jóngeirs Cudan að steikja einhverja Töng á Santa Pod. Vinur okkar Slantarinn hefur sennilega verið búinn að lúra þarna frameftir degi.......í Cudunni sko.  Hvað ætli sé nýtt að frétta af Slantarnum?  Ætli titanium milliheddið sé reddí?  Er hann búinn að fá tregbennandi leistana sem hann pantaði hjá Víkurprjóni?


http://www.youtube.com/watch?v=ONq2cBG7CXA&NR=1

440sixpack:

--- Quote from: "66 Charger" ---Fallegir bílar en..... full rólegt.
--- End quote ---


Þetta er rólegt Raggi minn, vegna þess að þeir eru á radialdekkjum ("Ragga-dekkjum") :P

Pinkie er á slikkum, þess vegna fer hann ekki eins rólega :lol:
Vildi bara skýra þetta út fyrir þér, þó held ég nú að þú sért farinn að skilja þetta núna, eftir reynslu sumarsins. :roll:

1966 Charger:
Æ-i hvað það er nú gaman að fá óumbeðnar útskýringar frá miklum reynslubolta í kvartmílunni eins og þér (Hvaða tíma áttu aftur bestan á slikkum? Þú náðir niður fyrir 14 var það ekki?).

Reyndar er ég svo tregur að ég læri andskotan ekkert af svona leiðbeiningum, síst af öllu þegar þær eru settar fram af húsasölumanni úti í bæ sem notar óverðskuldað "minn" fyrir framan nafnið mitt eins og ég væri með eign á skrá honum.  Þetta er nú í annað skiptið sem þú kemur með komment í þessum dúr hér og ég vona þín vegna að áhyggjur þínar af þessu brölti mínu réni á nýja árinu, þótt mér sé reyndar nokkuð skemmt yfir tuðinu í þér.

Ég lagast nefnilega ekkert og stefni á að skemmta litlu hirðinni í Stóra-Slikkatrúboði Hinna Síðari Daga Heilögu áfram á nýja árinu.  Ekki veitir af svo þið deyjið ekki úr alvöru yfir sportinu.

Raggi

Navigation

[0] Message Index

[#] Next page

Go to full version