Kvartmílan > Aðstoð
Jeep neitar að fara í gang
KiddiJeep:
Jæja ég er hérna með Jeep Cherokee/Wrangler línu sexu hrærigraut sem neitar að fara í gang! Ég reif Cherokee '91 4.0 og setti vél og skiptinu í Wrangler '87, fiffaði rafkerfið til og hann flaug í gang. Síðan skipti ég vélinni út fyrir 4.7 strókaða vél, tengdi allt saman aftur og hann neitar að fara í gang. Það kemur hvorki neisti íné bensín úr spíssum, bensíndælan kemur samt inn þegar svissað er á.
Ég er búinn að prófa að skipta um crank skynjarann, það hjálpaði ekkert til. Þá prófaði ég líka að tengja framhjá Automatic Shutdown Relay, það breytti heldur engu. Þekkir einhver hér inná þessa mótora, eða getur bent mér á GOTT verkstæði sem gæti hugsanlega náð einhverju viti í þetta :roll: :evil: :evil: :evil:
Kristján Skjóldal:
þetta getur nú ekki verið spenandi þegar þú er búinn að rústa rafkerfi :? öruglega eitthvað þar að stríða þér :roll:
baldur:
Mæla hvort að crank skynjarinn virkar. Þeir eru gjarnir á að bila í þessum bílum þannig að það er ekkert víst að hinn hafi virkað....
Heddportun:
Ef þú skiptir bara um vél þá á hann að fara aftiur í gang
Hvað varstu að fiffa í rafkerfinu?
KiddiJeep:
Það sem ég gerði við rafkerfið var bara að grisja úr allt sem tengdist boddýinu og ljósasysteminu í Cherokeenum og færði til vírana í plögginu við hvalbakinn þannig að ég gæti bara smellt því í samband við Wrangler rafkerfið. Ekkert verið að rústa rafkerfinu þannig séð... :)
Crank skynjarinn er splúnkunýr Mopar skynjari, ætti að vera í lagi :roll:
Það var einmitt pælingin, að henda 4.0 mótornum ofaní og koma þessu í gang, setja síðan strokerinn í og allt ætti að virka... en neeeeiii... :evil:
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version