Kvartmílan > Alls konar röfl
hver hefði trúað þessu?
Valli Djöfull:
Fengu þeir pening?
Þeir fengu "já" við að fá 200 milljóna króna lán frá byggðarstofnun eða eitthvað svoleiðis.. og annað hvort þessar 200 millz eða aðrar 200 millz frá reykjanesbæ eyrnamerktar ökugerði sem ekki er byrjað á, og peningar væntanlega ekki afhentir ennþá..
beer:
Ég trúi því ekki að marggjaldþrota menn hafi svo fengið pening frá ríkinu :shock: .
Hversu heimskt er það? Þetta er nógu lítið land að þetta á ekki að gerast. :evil:
Valli Djöfull:
http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4338516/1
Æjj æjj...
Samt frekar ömurlegt fyrir starfsfólkið..
429Cobra:
Sælir félagar. :)
Þetta skrifaði Vilhjálmur framkvæmdastjóri "Iceland Motopark" hér á spjallið fyrir nokkrum misserum:
--- Quote ---
Jæja,
Fyrir þann sem ætlaði að fagna þegar hann myndi sjá jarðýtur þá getur sá hinn sami tekið smá forskot á sæluna.
I dag var byrjað að taka fyrstu prufuholur og þær voru einmitt teknar í fyrirhugaðri kvartmílubraut. Á næstu dögum verður svo gerðar yfir 60 holur á svæðinu.
Formleg skóflustunga og upphaf verklegra framkvæmda verður þó ekki fyrr en 30. september kl 15:00. Allir velkomnir.
Ég vil endilega benda öllum sem hafa áhuga á að koma með hugmyndir eða athugasemdir að senda e-mail á vilhjalmur@icelandmotopark.com við höfum sérstaklega leitast við að gera sem flestum kleift að koma að verkefninu þannig að tekið sé tillit til séríslenskra aðstæðna.
Það er rétt að benda á að allar framkvæmdir og hönnun verkefnisins er gerð með það að leiðarljósi að brautin standist allar alþjóðlegar kröfur.
Og eins og ávallt þá óskum við eftir sem bestu samstarfi við KK og félaga þess.
Kær kveðja,
Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson
--- End quote ---
Þessu var beint til mín, en hvað nú........................................ :(
sindrib:
þeir eru ekki að standa sig. Ég og margir fyrrverandi vinnufélagar minir eru miklum vandræðum peningalega séð vegna þess að við vorum að vinna hjá þessu fyrirtæki, þetta kemur nátturulega á versta tíma, svona rétt fyrir jól, ég er bara feginn að hafa hætt í tæka tíð hjá þeim því ég kem alls ekki verst út úr þessu þótt ég sé að tapa mörg hundruð þúsundum í allskonar vanskila gjöld.
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
[*] Previous page
Go to full version