Author Topic: Land Rover Defender 110 V8 (komnar myndir)  (Read 1596 times)

Offline Boggi

  • In the burnout box
  • ***
  • Posts: 243
    • View Profile
Land Rover Defender 110 V8 (komnar myndir)
« on: November 04, 2007, 21:45:49 »
Til sölu Defender 110 V8 árgerð 1985. Bíllinn er með vökvastýri, 5 gíra kassa, læsanlegum sídrifsmillikassa og 3,5l. rover vélinni með 2 blöndungum og með diskabremsum að framan. Bíllinn er í góðu standi og hefur verið í töluverðri yfirhalningu síðan ég eignaðist hann í febrúar síðastliðinn. Akstur er 289 þús km. Skoðaður 08.

Þessi Defender var fluttur inn frá Sviss 2004 og hefur verið geymdur inni á veturna. Þetta eintak er ekki með sætum aftast og er því 5 manna, með geymslukassa milli ökumanns og farþega. Gúmmídúkur er í gólfinu á bílnum og innrétting er snyrtileg. Ég er búinn að ferðast mikið á bílnum í sumar og hann hefur reynst mjög vel.

Það sem ég hef gert við bílinn er eftirfarandi:

-   Ný pinionspakkdós í afturdrifi og að aftanverðum millikassa.
-   Öll ljósagler ný nema aðalljós að framan sem voru í lagi.
-   Nýjar bremsudælur að aftan.
-   Ný kúplingsdæla, neðri.
-   Ballansstangargúmmí og liðir nýjir.
-   Nýjir gormar framan og aftan + upphækkunarklossar  (4cm framan
        og 3 cm aftan).
-   Allar fóðringar nýjar í framhásingu.
-   Nýtt miðstöðvarelement.
-   Skipt reglulega um olíur á gírkassa, millikassa, vél og hásingum.
-   Nýklædd og uppbyggð sæti, svartur vínill auk þess nýtt gúmmi á
        gírstöng.
-   Nýupptekinn LT85 gírkassi.
-   Nýr hljóðkútur, opinn.
-   Nýr stýrisdempari.
-   Nýir pinnboltar í pústgrein.
-   Nýjar pústgreinapakkningar.
-   Ný bensínsía.

Auk þess hafa verið settar á bílinn grindur. Bíllinn er með sérsmíðaðan spilstuðara og öflugt vökvaspil. Á stuðaranum er kastaragrind með 2 ljóskösturum. Utan um framrúðuna er veltigrind/kastaragrind sem nær frá frambrettum og er tengd toppgrindinni. Ofan á veltigrindinni eru 4 nýir ljóskastarar. Einnig voru sett stuðarahorn aftan á bílinn og dráttarbeisli hækkað upp. Bíllinn er á ágætum 265/75 16 Hankook heilsársdekkjum.  Varadekksfestingar eru á afturhurð og vélarhlíf. Grindurnar eru allar galvanhúðaðar og málaðar.


Verð 670.000

Upplýsingar í síma 869-2324 eða borgthor06@ru.is

Borgþór Stefánsson







Ford Galaxie Country Sedan 1967