Kvartmílan > Keppnishald / Úrslit og Reglur

Tillögur að Breytingum á GT flokk

<< < (6/7) > >>

Gunni gírlausi:
Slæmi strákur!

berðu saman dekkjareglur í RS, GT SE og GF. Þá sérð þú að leyfð stærð  stækkar eftir flokkum.

Það er ekkert vit í því að leyfa stærri dekk í GT en SE.
En atugaðu það að þetta er stærð á slikkum, ekki hámarks stærð á dekkjum.

Og, hvað finst þér ósangjarnt við að framdrifsbílar rúlli upp afturdrifs og fjórhjóladrifsbílum?

Raggi, þú að keppa í GT með racegas væri eins og Ben Jonson að keppa á Special olympics. þú ert með GF markmið og GF bíl  :D

Gunni

3000gtvr4:

--- Quote from: "SupraTT" ---
--- Quote from: "3000gtvr4" ---Þetta er bara á við alla þá sem eru alltaf að væla yfir þessum reglum og keppa aldrei

Er ekki bara málið að leyfa þessum reglum að standa allvega í 2 til 3 ár svo endurskoða þær????

Mér finnst til dæmis ekki gott ef það á að leyfa racebensín í bæði RS og GT flokk þá eru þetta varla götubílaflokkar
--- End quote ---


juju meiga alveg vera svona afram

Eg var bara að  meina Race bensinið bætir ekki beint hestöflin eitt og ser.  Bara Auka öryggi og  Leyfir manni að hækka boostið og aggressive-ari ign timing.  Maður nær einflaldlega ekki að nyta setupið sitt þegar maður er limited af 98 okt / v-power  þegar maður er með frekar litla vel

Tokum t.d sem dæmi ef að það yrði fluttur inn TT Viper og hann yrði i GT flokk ,  1000+rwhp a 98 okt bensini,   Mjög gaman að reyna halda i við svoleiðis bil þegar maður er limitaður við  500-600 hp eða bara Corvette , Mustang eða eitthver þannig með Supercharger og kannski 700+ hestöfl a 98 okt
Finnst þessi regla bara gefa bilum með stærri velar svolitið forskot
--- End quote ---


Skil bara ekki hvernig það getur þá verið betra að vera á racebensíni þegar þessir bílar eru um 1000hp á 98 bensíni þeir hljóta nú að græða líka að nota racebensín líka er það ekki????

Ég held líka að þegar þú ert kominn með um eða yfir 1000hp bíl þá ætti nú að skoða að fara í annan flokk heldur en GT er það ekki

baldur:
punkturinn með þessum bensínreglum er að menn komi ekki með vélar í þessa flokka sem eru með of háa þjöppu til að vera nothæfar í götubíl. Til þess að hægt sé að kalla þetta götubíla þá þurfa þeir nú að vera keyrðir á götunni eitthvað meira en bara á milli bílskúrsins og brautarinnar.
Það er nóg til af bílum úti sem eru að keyra í 10 sek á 98 oktan með 2 lítra vélar og á götudekkjum, ekki "dekkjum sem eru tæknilega lögleg til aksturs á götunni en myndu tætast upp á örfáum kílómetrum".
Það er svo aftur annað mál að það er auðveldara að gera eitthvað á race bensíni og slikkum, en ef menn vilja kalla þannig bíla götubíla þá eru þeir að ljúga að sjálfum sér :wink:

Ingó:
GT flokkurinn er að mörgu leiti ágætur flokkur og sama  má segja um SE og GF en að mínu mati eru þeir ekki í takt við tímann enda voru þeir smíðaðir fyrir al mörgum árum.
Það sem vantar fyrir raunverulega götubíla þ.a.s. þá bíla sem eru á rúntinum t.d. 2 flokka annan án aukaaflgjafa og hinn með einum aukaaflgjafa og báðir takmarkaðir við fulla skoðun venjulegt bensín og drag radial dekk.

Kv Ingó. :)

Heddportun:

--- Quote from: "SupraTT" ---


Eg er reyndar ekkert að fatta þig.  

Veit alveg að M/T ET Street radial eru fin dekk

Sagði aldrei að CID væri malikvarði a afl.  Sagði bara að t.d bill með stærri vel og t.d turbo eða blower getur fengið meira afl en litil vel a 98 okt pumpu bensini.   Og sagði að mer fyndist þessi regla i raun hindra þa sem eru með minni velar i að geta nytt aflið sem þeir ættu inni.

Og ja það er ekki buið að gera mikið annað en að henda slikkum undir þessa supru svo hun trakki

Þetta er sama Supran , þegar hun var með Orginal fjöðrun,  Orginal Longblock keyrð 85 þus milur,  PT71-GTS @ 32 psi // All boost run // Orginal Kassi // Orginal Drif // Full weight

1.38 60 , 9.56@144.5mph
http://www.youtube.com/watch?v=Zer1Wcfy6Rw


Og hvaðan kom þetta alltieinu ?  


--- Quote ---700hp bíll sem viktar 1500kg er svipaður og 500hp bíll sem er 1200kg(fattaru) Hp eða Cid er enginn mælikvarði á afl eða kvartmílutíma

--- End quote ---


Nei ekkert endilega því vélar með litla borvídd geta frekar keyrt á lægri þjöppu en stórar,sérstaklega fjölventlavélar

Þetta með 700 og 500hp átti að sína þér að hp er ekki allt,Bílar með stórar vélar t.d Fbody eru oftast þungir ect..
--- End quote ---

Navigation

[0] Message Index

[#] Next page

[*] Previous page

Go to full version