Kvartmílan > Leit að bílum og eigendum þeirra.
Gamlar frá Sandinum 25.05.1980
1966 Charger:
Þessi rauði með brekkustartaranum er ekki Pontiac heldur Oldsmobile (Starfire?). Hann var með 455 vél (jafnvel úr Buick) þegar ég tók þessa mynd á bílasýningu BA 1978. Mig minnir jafnvel að sá sem átti hann þá hafi verið Elliðason og síðar átt þennan gráa og svarta Camaro sem er til umræðu á öðrum þræði.
Err
johann sæmundsson:
Mig minnir að þeir Elliða bræður hafi verið með BUICK, og eigandinn
að þessum Viðar Elliðason (kenndir við ElliðaRúllur)(Handrærarúllur).
Viðar átti þennan bíl nokkuð lengi, ég held að hann sé en til samkvæmt
öðrum þráði var verið að tala um svona bíl
Vona að þetta svari einhverju.
kv. joi
motors:
Hvíti Coronetinn var nokkuð seigur í þá gömlu" góðu daga"Fór 13.7xxx í spóli og vitleysu og á Cooper cobra dekkjum eða einhverju álíka,og já hann var vel hár að aftan,held hann sé hjá Gulla á Flúðum. :)
Boggi:
--- Quote from: "GunniCamaro" ---Þessi guli er, ef ég man rétt, sá ljósblái í dag og ég man að sú kjaftasaga gekk að hann færi kvartmíluna á ca. 15 sek. á skeiðklukku (það var áður en brautinn var byggð) en með standard 289 þá kalla ég hann góðann að nálgast 16 sek.
Þetta var á þeim árum þegar menn reyndu ýmislegt t.d. man ég eftir 4 dyra Volvo sem ætlaði augljóslega að steykja alla hina og mætti með heimasmíðaðar skóflur úr járni (ekkert gúmmí).
Síðan setti hann B18inn á yfirsnúning og þegar 1. gírinn var kominn á enda var skipt í 2. en þá dó B18 eiginlega og á miðri brautinni skipti hann niður í 1. aftur til að geta klárað, hann sást ekki aftur á brautinni.
--- End quote ---
Ég er nokkuð viss um að sá guli sé ónýtur. Ég á ljósbláan Country sedan 1967 sem ég hugsa að þú sért að meina, þetta eru tveir aðskildir bílar. Sá blái hefur alla tíð verið með 390 cu.
Kveðja Boggi
GunniCamaro:
Sorrý klikkaði aðeins á þessu með langbakana, ekki nema von að maður ruglist aðeins, þetta var rétt uppúr miðri síðustu öld.
Ég var vitni að því þegar umræddur hvítur Coronet tók stangarstökk upp á braut þegar skiptingin sprakk hjá honum út í enda en sem betur fer fór hann ekki út af.
Upphækkunin aftan á honum var aðalega framkvæmd með loftdempurum en þeir voru vinsælir á þessum árum til að framkvæma upphækkum.
Á þessum árum þótti ekkert að því að kalla bílinn sinn gælunöfnum t.d. "hvíti stormsveipurinn", "guli tyggjópakkinn" eða "bláa drottningin".
Ætli það kæmi ekki bros á menn ef einhverjir í dag mundi kalla bílanna sína slíkum nöfnum.
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
[*] Previous page
Go to full version