Kvartmílan > Leit að bílum og eigendum þeirra.

Á bílasölunni...

<< < (29/53) > >>

65tempest:

--- Quote from: "Einar Birgisson" ---"  Simca 1965 8 strokka nýuppgerður "

hvaða bíll var það ?
--- End quote ---


Heyrðu, Einar!

Þetta var Simca Vidette V8.. 140cid og eitthvað um 80 hö :lol:  :lol:

Hélt að þið norðanmenn sem eru í vöggu fordmenningarinnar ættu að vita þetta, því jú þetta var Ford V8.

Einar Birgisson:
Ok , þetta SKRÍMSLI er þá v8 stock ?

Gizmo:
"Lincoln Continental, fæst gegn skuldabréfi."

Greinilegt að sumt bara breytist ekki.. :lol:

Gunnar M Ólafsson:

--- Quote from: "Harry" ---Sæl öll. Einum 68 -69 GTO man ég eftir sem Gunnar Dungal í Pennanum átti og seldi bróður mínum. Hann var rauður með hvítum eða svörtum vinyl top - hvitur að innan og með snúningsmæli á húddinu og his/her skiftir - þetta var bíll með öllu.Það væri gaman ef einhver ætti mynd.

kv Harry
--- End quote ---


Harry.
Þessi var ´68 árg og var á Ísafirði ca´75 í eigu Jóns Jónssonar útgerðarmanns. Synir hans Mulli og Þröstur voru oft á honum , virkaði allsvakalega. Sagt var að einhver á Akureyri hefði flutt hann inn, gott ef Kennedy bræðurnir voru ekki orðaðir við það. Vinur minn reif úr honum innréttinguna ofl,  áður en hann fór í pressuna. Einn alfallegasti GTO sem til landsins kom

Anton Ólafsson:

Navigation

[0] Message Index

[#] Next page

[*] Previous page

Go to full version