Kvartmílan > Leit að bílum og eigendum þeirra.
Æðisleg lita samsetning
einarak:
--- Quote from: "57Chevy" ---Þetta var nú flottur bíll á sínum tíma. Forljótir þessir svörtu flekkir, sem eru seinni tíma viðbót.
Mér er alltaf minnisstæð ein ferð í þessum.
Ég var að setja bensín á "49 Ferguson og dældi of miklu á tankinn, bensínið fór niður í kveikjuna og allt í bál, það kviknaði í fötunum og maður sviðnaði í framan, verst var þó farin hendin sem hélt um bensínslönguna.
Frændi hafði komið með viðbótar slökkvitæki á Pontiac, og það var ákveðið að senda hann með mig með hraði út á spítala.
Og hraðferð var það, Lemansinn var staðinn eftir malarveginum út með Akrafjallinu út á Skaga, mælirinn sýndi um 170 mest alla leiðina, við mættum vörubíl á leiðinn á um 160 og bílstjórinn var alveg gáttaður á þessu aksturslagi um miðjan dag. Ég held að þessi ferð í þessum bíl líði mér seint úr minni, þó maður hafi verið sárkvalinn, er ferðinn það sem maður man lengst.
--- End quote ---
Þetta er ekki eini bensín fergusoninn sem brann, alger verðlauna hönnun á þessum gripum :lol:
burgundy:
Hvernig vél er í þessum í dag?
Kristján Skjóldal:
ekkert kram :wink:
-Eysi-:
Kristján, áttu þá ekki einhvað gott project handa mér ? mér vantar einhvað í skúrinn hann er svo tómur.. :lol:
Navigation
[0] Message Index
[*] Previous page
Go to full version