Kvartmílan > Mótorhjól
Uppákoma á ljósanótt hjá vikingum í Reykjanesbæ
(1/1)
Hera:
Undirbúningur fyrir Ljósanótt hafinn...
Við munum setja upp smá svæði í Grófinni, þar sem við hyggjumst vera með kynningu á starfsemi félagsins og framtíðar áformum. Kynna hugmyndir, um lokað æfingasvæði
fyrir bifhjól og fleira tengt því.
Við munum stilla upp og sýna hlífðarbúnað, svo sem: leðurgalla, brynjur,
hjálma og fleira.
Einnig verða sýndir gallar og hjálmar eftir slys, og fórnarlömb slysa verða á staðnum og segja sína sögu.
Við verðum með hópferðabíl, sem er innréttaður í anda mótorsportsins og munum þar sýna myndbönd og bjóða upp á kaffi.
Skráum í félagið á staðnum, og vonandi sjáum við sem flesta.
Við verðum með nokkur hjól til sýnis og að lokum munu nokkrir meðlimir sýna smá jafnvægis og hemlunar æfingar.
kv. Stjórnin.
Heimild. http://vikingar.tk/
Ravenwing:
Sæl Edda,
Flott framtak þetta, hvar í grófinni verðið þið með þetta?
Er þetta í samstarfi við Erni og ljósanætur hátíðina eða?
kveðja
Dóri Draumur ;)
Hera:
--- Quote from: "Ravenwing" ---Sæl Edda,
Flott framtak þetta, hvar í grófinni verðið þið með þetta?
Er þetta í samstarfi við Erni og ljósanætur hátíðina eða?
kveðja
Dóri Draumur ;)
--- End quote ---
Ég veit ekki meir fann linkin á þetta og ákvað að setja þetta hér inn :wink: bara auglýsa þetta veit sjálf ekki hvar grófin er :?: :?:
Ravenwing:
ok meinar, grófin er þarna rétt við þar sem hjólin hafa alltaf verið staðsett í enda akstursins niður hafnagötuna.
Veistu um link sem virkar á síðuna þeirra? þessi sem var í póstinu frá þér virkar ekki...og ég er ekki að finna þá með leit...
Hera:
--- Quote from: "Ravenwing" ---ok meinar, grófin er þarna rétt við þar sem hjólin hafa alltaf verið staðsett í enda akstursins niður hafnagötuna.
Veistu um link sem virkar á síðuna þeirra? þessi sem var í póstinu frá þér virkar ekki...og ég er ekki að finna þá með leit...
--- End quote ---
Linkurinn komin í lag :wink: gleymdi endingunni :oops:
Navigation
[0] Message Index
Go to full version