Kvartmílan > Leit að bílum og eigendum þeirra.
2x Pontiac Firebird
Moli:
Hjá Atlantsskipum, í Janúar lenti ´77-´78 Firebird sem ég hef ekki séð síðan, en leit út fyrir að vera ágætis efniviður.
Rakst síðan á ´77 Trans Am (skv. VIN#) bíl í Njarðvík í lok Maí/byrjun Júní, þar sem verið var að sprauta, búið að mála föls og var þokkalegur, en átti eftir að mála meira og var með T-top. Bíllinn hafði verið tollafgreiddur/forskráður í Febrúar og er ekki ennþá (í dag) nýskráður.
Þekkir einhver meira til hans?
Mjög líklega sami bíll og stóð hjá Atlantsskipum?
Mynd af bílnum hjá Atlantsskipum
Síðan sá ég á Selfossi sl. föstudagsmorgun á dóli eftir Austurveginum mattsvartan ´70-´73 Pontiac Firebird, með formula húdd og enga spoilera.
Kann einhver skil á þessum bíl? :?
Elmar Þór:
staðan á þessum 78 bíl er sú sama og þegar þú sást hann, búið að mála inn í föls og ekki búið að mála meira. Þetta kemur allt með kaldavatninu hjá kallinum, minnir að hann sé á 3 ára planinu. Þetta er flott eintak, ekkert rið.
Geir-H:
Ég sá þennan 70-73 Firebird niðrí porti hjá samskip um daginn svo fyrir utan IB á selfossi á laugardaginn, veit ekki meir tók mynd þarf að setja hana inn
JHP:
--- Quote from: "Geir-H" ---Ég sá þennan 70-73 Firebird niðrí porti hjá samskip um daginn svo fyrir utan IB á selfossi á laugardaginn, veit ekki meir tók mynd þarf að setja hana inn
--- End quote ---
Sá hann bakvið IB á föstudaginn...Bara ljótur bíll :lol:
57Chevy:
Maggi skoðaðir þú nokkuð inn í 78 bílinn, var hann með giltu mælaborði og giltu í stýrinnu. Er að spá í hvort þetta geti verið Y82 Special Edition ,grillið og felgurnar benda til þess.
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version