Næstkomandi fimmtudagskvöld eða þann 12. Júlí milli 20:00 og 21:30 mun Krúser standa fyrir kynningu á Mothers bóni og hreinsivörum fyrir bíla.
Sýnt verður hvernig bón er gott að nota á gamla bíla, hvernig það sé best notað hvernig bíla.
Um 21:30 verður síðan tekinn rúntur í bæinn, en það verður auglýst á staðnum, og fer að sjálfsögðu eftir veðri.
Spáð er mjög góðu veðri og er þetta því tilvalið tækifæri að sýna sig og sjá aðra! Skorum á sem flesta til að mæta, hef heyrt að nokkrir bílar sem sjaldan sjást hjá Krúser láti sjá sig annaðkvöld! Sífellt er aukning á meðlimum í Krúser og telja þeir á sjötta hundraðið nú þegar!
Glimrandi tónlist í anda sjöunda og áttunda áratugarins, og fyrir slikk er hægt að fá ískalt CocaCola og súkkulaði með til að seðja hungrið.
Sannir bílaáhugamenn láta sig ekki vanta á þetta! Hvar verður þú??
Með kveðju,
Krúser-hópurinn
komnir til að vera.
Bíldshöfða 18.