Kvartmílan > Mótorhjól
Motormax
halli000:
MotorMax voru að fá til sín þessa fínu símadömu í vinnu og er síma málin loksins komin í lag :wink:
Klaufi:
--- Quote from: "halli000" ---MotorMax voru að fá til sín þessa fínu símadömu í vinnu og er síma málin loksins komin í lag :wink:
--- End quote ---
Þúsundkall á að þú vininr hjá Motormax!
ADLER:
--- Quote from: "Klaufi" ---
--- Quote from: "Gísli Camaro" ---amms. er búinn að lenda í þessu. líka hjá suzuki umboðinu. bæði í síma og á staðnum endalaus BIÐ og ekkert annað en bið á þessum tveim stöðum
--- End quote ---
Á erfitt meða ða vera sammála þér með súkku umboðið.. Hef aldrei fengið betri þjónustu hjá umboði :/
Bæði hvað varðar að fá upplýsingar, hjálp, varahluti eða hvað sem er.
Besta umboðið á landinu að mínu mati, þó lítið sé..
Mínir 10 aurar.
--- End quote ---
suzuki umboðið hefur komið vel út og flest allt staðist uppá hár sem að sagt er þar og nokkuð oft sem að hlutir eru til en það hefur ekki verið algegnt hjá umboðs aðilum mótorhjóla í gegnum tíðina.
Þetta er mín reynsla..
TONI:
Karl faðir minn á Yamaha hjól núna og er aukalhlutasjúkur, hann fór þarna inn og ættlaði að fara að kortleggja málin, sjá hvað væri fáanlegt en þann fékk akkúrat enga þjónustu, voru uppteknir við að gera allt annað en að vinna vinnuna sína þar til að hann náði að króa af enn larfinn og vildi svör, þetta var allt svo erfitt og bara ekki fánalegt sem var í bæklingnum að hanns sögn svo að hann ættlar að leita annara leiða til að kaupa þessa hluti. Síðasta hjól sem hann átti var skreytt fyrir um miljón á einu ári svo að ég hélt að það mætti nú leggja smá í að þjónusta hann. Þetta var bara eins og félagsmiðstöð fyrir vini starfsmanna sem lágu bara á netinu að skoða eitthvað sem var vinnunni með öllu óviðkomandi. Af Suzuki hef ég bara gott að segja, þetta er lítið og fáliðað umboð svo að það gæti staðið illa á hjá þeim einstaka sinnum, þá er bara að renna við ef menn hafa tök á því, eitthvað sem virkaði ekki hjá Motor-Max. Það hefur lítið upp á sig að ráða símadömu til að ansa og gefa samband á starrfsmenn sem taka svo ekki símann.
Halldór Ragnarsson:
Sammála fór í MótorMax tvisvar og stóð og beið í korter og þetta var eins og unglingaheimili allir á kafi í tölvunni og einn að afgreiða,á endanum gafst ég upp og fór og verslaði í Útilegumanninum fortjald á fellihýsið ofl.
Fékk mun betri þjónustu þar,og nei ég þekki engan þar og vinn ekki þar :)
kv.Halldór
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
[*] Previous page
Go to full version