Kvartmílan > Leit að bílum og eigendum þeirra.
Gamli góði
Cameloen:
--- Quote from: "firebird400" ---Pústþjónusta Bjarkars EHF
4213003
8940149
:wink:
Hann stendur þar fyrir utan, eða gerði það seinast er ég vissi
--- End quote ---
Ég för einusinni til að skoða hjá Pústþjónustu Bjarkars og billin var ekki fyrirutann húsið, það var kvold og verkstæði var lokað,, ég verður að reyna bjalla og spyrja , ,,, takk ,,,
kv.cameloen
Gunnar Örn:
Svo ég viti til eru eftirfarandi bílar svipaðir þessum til:
Eitt stykki Fiat 500(eins og þessi á myndini) appelsínugulur í eigu Ómars Ragnarssonar.
Einn hvítur Fiat 600d u.þ.b. 1965 árg. stendur oft á Freyjugötuni í Reykjavík.
Einn Fiat 600 í keflavík sem ég þekki ekkert frekar.
Af gerðini Zastava eru að mér vitanlega til fimm bílar.
Einn er úti á nesi, uppgerður skrúfu fyrir skrúfu og mjög fallegur, appelsínubrúnn.
Einn Ljósblár er í Hátúninu.
Einn Rauður inn í Álfheimum.
Síðan eru tveir sem eru í óskiptu dánabúi norður í Varmahlíð.
Þessir bílar eru allir í nothæfu standi og flestir á númerum, en um bílskúrsrottur af þessum gerðum þekki ég ekki, en hef áhuga á að frétta af slíkum ef einhver veit um slíkt.
Fiat 600d
Zastava 750
HK RACING2:
Einn vinur minn á fiat topolino 500 1937 árgerð sem þarfnast uppgerðar og er geymdur uppí fornbílaskemmu.
Gunnar Örn:
--- Quote from: "HK RACING2" ---Einn vinur minn á fiat topolino 500 1937 árgerð sem þarfnast uppgerðar og er geymdur uppí fornbílaskemmu.
--- End quote ---
Er það ekki þessi hér'
firebird400:
Svo er einn helv reffilegur Topolino í smíðum hérna, var t.d á Bíladellu 2007, svo við það að klárast :lol:
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
[*] Previous page
Go to full version