Kvartmílan > Leit að bílum og eigendum þeirra.

Er eitthvað vitað um þennan???????

<< < (2/2)

R 69:
Ég held að þetta séi bíll sem að bróðir eða frændi Einsa Smart átti.
Það sakar ekki að spurja Einsa.

Siggi H:

--- Quote from: "Björgvin Ólafsson" ---Tja... það er þessvegna sem ég spyr - þetta gæti samkvæmt litnum verið 08 miði, en samkv. bifrskrá er mjög langt síðan hann var skoðaður.

kv
Björgvin
--- End quote ---

er ekki pottþéttur á því, en mér sýnist skoðunarmiðin í glugganum vera frá árinu 1995.

olighak:
Hann er ennþá til.

Ég keypti hann í Apríl 1999 og á hann enn. Af tryggingaástæðum skráðum við hann fyrst á föður minn og svo okkur tvo sameiginlega.

Þegar ég fékk hann var hann á víra felgum ekki þessum sem eru á myndinni. Þær voru haugryðgaðar svo ég var fljótur að koma honum á orginal stál felgur, með réttum koppum, snobbhringum og á dekk í réttri stærð 185/65R15 eða 165R15.

Bílinn tók ég svo sandblés og hófst handa við að að lappa upp á hann. Hann þurfti, og þarf enn heilmikla hjálp vegna ryðvandamála og að laga fyrri viðgerðir.

Fyrir neðan eru nokkrar myndir frá því að ég fékk hann. Rest er á http://amazon.hakansson.us.

Ég sankaði að mér endalausum pörtum og á helling af þeim sem bíða . Eins og er þá er R25 í biðstöðu þar sem að ég er 4000km frá honum og hef verið í þónokkur ár. Heimsótti hann samt fyrir mánuði og hann er í sama ásigkomulagi og ég skildi við hann í. Ég hef verið að gæla við að taka hann yfir til mín. Það er ekkert fjárhagslegt vit í því, en það er gott að klára það sem maður byrjar á.

Ég er með 4 dyra '64 Sport úti sem var keyrður innan við 70.000km þegar ég fékk hann. Er að klára að setja í þann bíl loftkælingu og M41 gírkassa í stað M40 núna í vikunni. Sá rýkur áfram.











olighak:

--- Quote from: R 69 on May 06, 2007, 17:36:33 ---Ég held að þetta séi bíll sem að bróðir eða frændi Einsa Smart átti.
Það sakar ekki að spurja Einsa.

--- End quote ---

Skráður eigandi á undan mér var Einar Jónsson í Keflavík. Þar á undan var það Gunnar.

Navigation

[0] Message Index

[*] Previous page

Go to full version