Author Topic: Tillaga að lagabreytingu  (Read 3992 times)

Offline Nóni

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.213
    • View Profile
    • http://www.icesaab.net
Tillaga að lagabreytingu
« on: March 18, 2007, 00:13:42 »
Sett fram af Friðrik Daníelssyni



Núverandi:

7. gr. Breytingar á lögum félagsins og einnig breytingar á keppnisreglum má aðeins gera á aðalfundi félagsins. Til að breytingar á lögum eða reglum félagsins nái fram að ganga þarf, minnst, atkvæði 2/3 hluta mættra félagsmanna. Auglýsa skal tillögur að laga eða reglubreytingum í fundarboði til aðalfundar.

 

Breytingar:

 

7. gr. Breytingar á lögum félagsins og einnig breytingar á keppnisreglum má aðeins gera á aðalfundi félagsins. Til að breytingar á lögum eða reglum félagsins nái fram að ganga þarf, minnst, atkvæði 2/3 hluta mættra félagsmanna.

Tillögum að reglubreytingum skal skila inn til nefndar sem fer yfir tillögur að breytingum eða kemur með tillögur sjálf til reglu eða flokkabreytinga.

Tillögur skulu berast nefndinni skriflega  fyrir 5 Janúar hvers árs.

Nefndin skal skipuð minnst  3 og ekki fleirum en 5  mönnum ,sem ekki sitja við stjórn KK á því tímabili, völdum af stjórn klúbbsins til tveggja ára í senn.

Þessi nefnd skal þar næst að boða til fundar með keppendum í þeim flokkum sem lagt er til að breyta til að rökræða tillögur eftir að fresti til að skila inn tillögum lýkur.

Þær tillögur sem nefndin samþykkir þarf svo að kjósa um á aðalfundi
.
Kv. Nóni

_______________

Jón Gunnar Kristinsson,
með SAAB á heilanum.
www.icesaab.net

Betra er að blása en að sjúga!
SAAB 9000 túrbó 1987    12.100 @ 115.0

Offline Valli Djöfull

  • Doing 20ft wheelies
  • ******
  • Posts: 2.714
    • View Profile
Tillaga að lagabreytingu
« Reply #1 on: April 01, 2007, 21:10:48 »
Þessi var einnig samþykkt :)
Valbjörn Júlíus Þorláksson - GSM: 820-8488

Offline Valli Djöfull

  • Doing 20ft wheelies
  • ******
  • Posts: 2.714
    • View Profile
Tillaga að lagabreytingu
« Reply #2 on: April 01, 2007, 23:17:24 »
Náði einni mynd af fundarstjóra með gjöfina vinstramegin við sig... 8)
(hræææðilega léleg mynd en líklegast eina myndin sem var tekin)
Valbjörn Júlíus Þorláksson - GSM: 820-8488

Offline cv 327

  • Pre staged
  • ****
  • Posts: 433
    • View Profile
Re: Tillaga að lagabreytingu
« Reply #3 on: September 26, 2007, 21:52:43 »
Hérna er þetta, grænt á hvítu.

Quote from: "Nóni"
Sett fram af Friðrik Daníelssyni



Núverandi:

7. gr. Breytingar á lögum félagsins og einnig breytingar á keppnisreglum má aðeins gera á aðalfundi félagsins. Til að breytingar á lögum eða reglum félagsins nái fram að ganga þarf, minnst, atkvæði 2/3 hluta mættra félagsmanna. Auglýsa skal tillögur að laga eða reglubreytingum í fundarboði til aðalfundar.

 

Breytingar:

 

7. gr. Breytingar á lögum félagsins og einnig breytingar á keppnisreglum má aðeins gera á aðalfundi félagsins. Til að breytingar á lögum eða reglum félagsins nái fram að ganga þarf, minnst, atkvæði 2/3 hluta mættra félagsmanna.

Tillögum að reglubreytingum skal skila inn til nefndar sem fer yfir tillögur að breytingum eða kemur með tillögur sjálf til reglu eða flokkabreytinga.

Tillögur skulu berast nefndinni skriflega  fyrir 5 Janúar hvers árs.

Nefndin skal skipuð minnst  3 og ekki fleirum en 5  mönnum ,sem ekki sitja við stjórn KK á því tímabili, völdum af stjórn klúbbsins til tveggja ára í senn.

Þessi nefnd skal þar næst að boða til fundar með keppendum í þeim flokkum sem lagt er til að breyta til að rökræða tillögur eftir að fresti til að skila inn tillögum lýkur.

Þær tillögur sem nefndin samþykkir þarf svo að kjósa um á aðalfundi
.
Kveðja.
Gunnar B. Eyjólfsson
Sveitakallinn

Offline cv 327

  • Pre staged
  • ****
  • Posts: 433
    • View Profile
Re: Tillaga að lagabreytingu
« Reply #4 on: January 25, 2008, 00:40:56 »
Quote from: "Nóni"


Þessi nefnd skal þar næst að boða til fundar með keppendum í þeim flokkum sem lagt er til að breyta til að rökræða tillögur eftir að fresti til að skila inn tillögum lýkur.

Þær tillögur sem nefndin samþykkir þarf svo að kjósa um á aðalfundi[/b].[/color]


Þarf nefndin ekki líka að skila inn sínum tillögum fyrir 5 jan.?? Og ætti ekki að opinbera strax eftir 5 jan. hvort og hvaða tillögur hefðu borist.??
Bara að velta þessu upp.

Kv. Gunnar B.
Kveðja.
Gunnar B. Eyjólfsson
Sveitakallinn

Offline Jón Þór Bjarnason

  • Doing 20ft wheelies
  • ******
  • Posts: 3.888
    • View Profile
Tillaga að lagabreytingu
« Reply #5 on: January 25, 2008, 05:10:54 »
Persónulega finnst mér að þessi nefnd hefði átt að vera búinn að boða til fundar. Það þarf að boða nokkra fundi. Einn fund með viðkomandi flokk sem breytingar liggja fyrir hefði ég haldið, nema það eigi að setja þetta allt saman í einn hrærigraut. Ég veit ekkert hvernig staðan á þessu er en það styttist óðum í aðalfund.

Bara mín 5 cent.
S:899-3819
1995 Pontiac Firebird Trans Am
2006 VW Passat 2.0L HighLine
1974 VW Bjalla 1303 Engine street racing kit
1984 Pontiac Fiero 3800 series II supercharged

Offline cv 327

  • Pre staged
  • ****
  • Posts: 433
    • View Profile
Tillaga að lagabreytingu
« Reply #6 on: January 25, 2008, 09:21:40 »
Það má lika velta því upp "Hvernig stendur nefndin að því að boða til fundar"?.
Hringir hún í keppendur?
 Eða er það gert hér á sjallinu?
Hver flokkur fyrir sig?
Hvenær verða tillögur kynntar?

Þetta eru svona hlutir sem ég bara að benda á. Mér finnnst að þetta þurfi að vera á hreinu, svo keppendur viti í tíma fyrir aðalfund, hvaða afstöðu þeir taka um breytingartillögur.

Ekki skilja þetta þannig að ég vilji endilega sjá miklar breytingar á flokkum, heldur að menn viti hvernig þeir eiga að undirbúa sig fyrir keppnistímabilið. Fínt að reglur gætu ekki breyst á 2-3gja ára timabili.

Bara minn hugsunargangur.

Kv. Gunnar B.
Kveðja.
Gunnar B. Eyjólfsson
Sveitakallinn

Offline Kristján Skjóldal

  • On the bumper looking at god
  • *******
  • Posts: 4.781
  • ef stórt er gott þá er stærra betra
    • View Profile
Tillaga að lagabreytingu
« Reply #7 on: January 25, 2008, 09:31:37 »
=D> lauk rétt endalausar reglubreitingar og svo líðræðis kosnigar sem að meiri helmingur af fólki réttir upp hönd án þess að vita um hvað var verið að kjósa en bara gaurin við hliðina gerði það þá hlítur það að vera gott ekki satt :?
best á Camaro 1972 1,49 60 f 6,49 1/8  10,19 1/4 @ 131.96.  best á  Blower Camaro 1967 1,16 60 F 5,12 1/8 og 8,16 1/4 @169. best á Dragga 8,26 @ 170,97 en þá voru ekki komnir 60 f timar. sandur 3,34 draggi og á hjóli 4,56 kveðja Kristján Skjóldal

Offline Davíð S. Ólafsson

  • Pre staged
  • ****
  • Posts: 306
    • View Profile
Tillaga að lagabreytingu
« Reply #8 on: January 25, 2008, 21:56:33 »
Strákar anda að sér og svo aftur frá sér. :idea:

Hversu miklu hefur verið breytt af reglum síðastliðin ár ?

Nú er í gangi vinna til þess að einfalda þessar reglur sem við höfum. Það er aðalfundar að ákveða hverjar eða hvort breytingar verða.

Haldin verður fundur með keppendum í hverjum flokki þar sem farið verður yfir tillögur að breytingum.
Er það ekki mál  keppanda að hann fái að tjá sig um hvort það verða breytingar eða ekki ?
 
Auðvita verður auglýst  hvenær fundur verður haldinn.

Kveðja Davíð

Offline cv 327

  • Pre staged
  • ****
  • Posts: 433
    • View Profile
Tillaga að lagabreytingu
« Reply #9 on: January 25, 2008, 23:41:56 »
Sæll Davið.

Takk fyrir svörin. Finnst reyndar vanta svar um það, hvort að breytingartillögur sem kunna að verða kosið um á aðalfundi, verði kynntar tímanlega fyrir aðalfund.  :idea:

Kv. Gunnar B.
Kveðja.
Gunnar B. Eyjólfsson
Sveitakallinn

Offline cv 327

  • Pre staged
  • ****
  • Posts: 433
    • View Profile
Tillaga að lagabreytingu
« Reply #10 on: February 11, 2008, 20:17:30 »
Quote from: "Suzuki"
Strákar anda að sér og svo aftur frá sér. :idea:

Hversu miklu hefur verið breytt af reglum síðastliðin ár ?

Nú er í gangi vinna til þess að einfalda þessar reglur sem við höfum. Það er aðalfundar að ákveða hverjar eða hvort breytingar verða.

Haldin verður fundur með keppendum í hverjum flokki þar sem farið verður yfir tillögur að breytingum.
Er það ekki mál  keppanda að hann fái að tjá sig um hvort það verða breytingar eða ekki ?
 
Auðvita verður auglýst  hvenær fundur verður haldinn.

Kveðja Davíð


Sæll Davíð.

Er eitthvað að frétta af reglubreytingum fyrir aðalfundinn og fundi með keppendum??

Eru kanski engar flokkabreytingar fyrirhugaðar eða bárust ekki neinar tillögur??

Fór auglýsing um fund með keppendum kanski framhjá mér?? :oops:

Kv. Gunnar B.
Kveðja.
Gunnar B. Eyjólfsson
Sveitakallinn

Offline Davíð S. Ólafsson

  • Pre staged
  • ****
  • Posts: 306
    • View Profile
Tillaga að lagabreytingu
« Reply #11 on: February 11, 2008, 21:23:40 »
Sæll Gunnar.

Þetta hefur verið í höndunum á reglugerðar nefndinni. Vonandi halda þeir fund með keppendum í vikunni. Verður auglýst hér á vefnum.

Davíð