Author Topic: Reglu og lagabreytingatillögur til aðalfundar. RS flokkur.  (Read 3645 times)

Offline Nóni

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.213
    • View Profile
    • http://www.icesaab.net
Reglu og lagabreytingatillögur til aðalfundar. RS flokkur.
« on: February 24, 2007, 23:53:08 »
Hér að neðan verða settar tillögur að reglubreytingum sem samþykkja þarf eða hafna á aðalfundi.

Tillaga frá Jóni Gunnari Kristinssyni og Gunnari Sigurðssyni, græna letrið táknar það sem bætt hefur verið við og rauða letrið það sem tekið er burtu.



RS flokkur


RS flokkur


FLOKKSLÝSING

RS eða Rally Sport, er flokkur fólksbíla sem smíðaðir eru eftir 1980, með 4000cc (4,0l) 4, 5 og 6strokka vélum uppreiknuðum eða minni. Bílar með drif á fjórum hjólum leyfðir sem eru með vélar 2000cc (2,0L) eða minni óuppreiknað. Aðeins er leyfður einn “aflauki” (power adder) hvort sem það er afgasforþjappa "turbocharger, reimdrifin forþjappa "supercharger" eða nítró. Þegar talað er um uppreiknun á vél er verið að tala um forþjöppur sem er reiknað :vélarstærð x 1,7 = X. Wankel Rotary: Vélarstærð(cc) x 2,2 = X. Ef um Wankel með forþjöppu er að ræða þá cc x 2,2=X x 1,7=X.
Ekki er um uppreiknun að ræða þegar um er að ræða bíla án forþjöppu. "natural aspiret". Þessi flokkur er einnig fyrir bíla með vélarstærð að 3800cc (3,8L) með reimdrifinni forþjöppu "supercharger" "Eaton" eða "Magnuson" gerð og drifi á einum ás, aftan eða framan, sem eru framleiddir upprunalega með slíkum búnaði. Bílar með vélar 1600cc (1,6 L) og minni án forþjöppu mega nota nítró innspýtingu. Allir bílar verða að vera á númerum, löglegir til götuaksturs með rétta skoðun. Undantekningar á þessu má lesa í reglum hér að neðan.
Ræst skal á jöfnu með "full tree"
Merking:RS/númer.
VÉL:

Vél:
Aðeins má nota vélar sem voru í boði í því boddíi sem nota á. (T.d. má aðeins nota vélar úr 4 gen Camaro í 4. gen Camaro)Verður að vera samskonar blokk og kom í bílnum upprunaleg frá verksmiðju, með sama þjöppuhlutfall í stimplum og er gefið upp original. Setja má forþjöppur á bíla sem ekki koma original með forþjöppur. Ekki má breyta bílum með blöndung í innspýtingu eða öfugt. Ekki má auka slagrúmtak vélar óuppreiknað frá því sem gefið er upp original í viðkomandi bíl frá verksmiðju.
Setja má forþjöppur á vélar sem ekki voru með forþjöppu original.
Undantekning frá þessu eru vélar sem eru 3800cc (3,8L) eða minni og eru original með reimdrifna forþjöppu "supercharger" "Eaton" eða "Magnuson" gerð í þeim bíl sem þær komu upprunalega í frá verksmiðju.
Blokk:
Aðeins má nota blokk sem voru í boði í því boddíi sem nota á. (T.d. má aðeins nota blokk úr 4 gen Camaro í 4 gen Camaro)
Vélarblokk skal vera sömu gerðar og tegundar og viðkomandi bíll kom með frá verksmiðju. Ekki má breyta blokk á nokkurn hátt nema til að fá betra olíuflæði.
Aðeins venjuleg slitútborun er leyfð á vélarblokk.

Sveifarás:
Aðeins upprunalegir eða eins og upprunalegir sveifarásar leyfðir. Þó er leyfilegt að nota hvaða efni í sveifarás sem er.
Ekki má auka slaglengd sveifaráss. Aðeins slitrennsla á sveifarás leyfð.

Hedd:
Frjálst val er á heddum. Öll vinnsla á heddum er leyfð, svo framarlega að hún breyti ekki útliti þeirra.
Frjálst val er á ventlum, ventlagormum, rockerörmum osf…..
Leyfilegt er að stækka og vinna ventla að vild.

Ventlalok:
Allar gerðir og tegundir ventlaloka leyfðar.

Kambás:
Frjálst val er á kambásum.
Þó má ekki breyta vökva yfir í mekaníst.
Undirlyftur:
Frjálst val.

Tímagír:
Frjáls val á tímagírum, beltum, reimum, keðjum, osf…..

Stimpilstangir:
Frjálst val er á stimpilstöngum., svo framarlega að þær breyti ekki hlutföllum í mótor frá original, eða breyti slaglengd eða þjöppu.
Stimplar:
Setja má hvaða gerð af stimplum í mótorinn í hvaða slitútborun sem er., svo lengi sem þeir breyta ekki þjöppu frá uppgefinni þjöppu í viðkomandi útgáfu af vél frá verksmiðju.
Stimpilhringir:
Allar gerðir og tegundir stimpilhringja leyfðar.

Olíudæla:
Nota má olíudælu sem dælir auknu magni og eða þrýsting.
"Dry sump" olíudælur eru bannaðar nema að viðkomandi bíll hafi verið fáanlegur með slíkri dælu frá verksmiðju.

Olíukerfi:
"Dry sump" olíukerfi bönnuð nema að viðkomandi bíll hafi verið fáanlegur með því frá verksmiðju.
Að öðru leyti er frjálst að nota hvaða olíu kerfi sem er frá hvaða framleiðanda sem er.
Einnig má vinna og slípa olíugöng í blokkum, heddum, osf…. Til að fá sem besta endingu vélar.

Tölvur:
Allar original tölvur sem tengdar eru: vél, innspýtingu, kveikju, o.s.frv. skulu virka.
Breytingar, endurforritun og ísetning á tölvukubbum er leyfð. Eftirmarkaðs tölvukubbar og/eða örflögur leyfðar.
Eftirmarkaðs tölvur (stand alone og piggyback) leyfðar.
Trissur.
Skipta má um driftrissur sem drífa: vatnsdælu, rafal,vökvastýri, osf…. Og setja niðurgíraðar trissur í þeirra stað.

ELDSNEYTISKERFI

Soggrein:
Frjáls val er á soggrein, þó verður hún að komast undir vélarhlíf.
Blöndungar/

Innspýtingar:
Breyta vél með blöndungi yfir í innspýtingu og öfugt.
Aðeins má nota innspýtingar sem eru original eða eins og original (það er mekaníska eða elektróníska þar sem það á við).
Sama gildir um blöndunga. Þó má stækka rúmtak þeirra eða skifta og fá stærri sömu gerðar. Ekki má skipta frá standard yfir í spredbore eða öfugt.
Breyta má innspýtingum eins og hver vill
Bensínleiðslur:
Allar tegundir og sverleikar af viðurkenndum bensínleiðslum eru leyfðar.

Bensínsíur:
Frjálst er að nota eins margar bensínsíur eins og hver vill eða sleppa þeim.
Allar gerðir og tegundir af viðurkenndum bensínsíum leyfðar.

Bensíntankur:
Bensíntankur verður að vera original eða eins og original. Ef ekki er upprunalegur tankur notaður verður sá sem notaður er að líta eins út, taka sama magn og vera í sömu festingum og sá upprunalegi. Bensínleiðslur verða að vera teknar út úr tankinum á upprunalegum stað. "sump" er bannað.

Lofthreinsari:
Lofthreinsari er aukahlutur og ráða keppendur hvort hann er notaður eða ekki.

Forþjöppur:
Frjálst val. Hvort sem um er að ræða original eða eftirmarkaðs afgasforþjöppur (turbo) eða reimdrifnar (supercharger). Allar forþjöppur verða að komast undir upprunalega vélarhlíf. Sjá: Vél.

Millikælir:
Millikælir er aukahlutur og er því hverjum sem er frjálst að nota hann eða ekki.
Þá má einnig setja millikæla í vélar sem ekki voru original með þeim búnaði.

Eldsneyti:
Aðeins það bensín leyft sem fæst á bensínstöðvum og er afgreitt af dælu.
Öll almenn bensínbætiefni leyfð.
Nítro (N2O) leyft á vélun að 1600cc (1,6L), án
forþjöppu.

Nítro (N2O) leyft á vélum uppreiknað sem túrbó.
Bensínbætiefni bönnuð.

KVEIKIKERFI

Kveikja:
Allar tegundir kveikikerfa eru leyfðar.

Háspennukefli:
Allar tegundir háspennukefla leyfðar.

Kertaþræðir:
Allar tegundir kertaþráða leyfðar.

Kerti:
Allar tegundir kerta leyfðar.

ÚTBLÁSTURSKERFI:

Pústflækjur:
Pústflækjur leyfðar, þó má ekki klippa úr yfirbyggingu til að koma þeim fyrir.

Púströr:
Púströr skulu ná útfyrir yfirbyggingu bíls. Sverleiki á rörum má ekki vera meiri en 4" (10,16cm) á einföldu kerfi og 3" (7,62cm) á tvöföldu kerfi.
Pústkerfi skal þó smíðað þannig að það sé hægt að fara með það beint úr keppni á viðurkennda skoðunarstöð og það fái fulla skoðun.

Hljóðkútar:
Hljóðkútar verða að vera til staðar og skoðun verður að fást á þá hjá viðurkenndri skoðunarstöð.
Aðeins fjöldaframleiddir hljóðkútar leyfðir.

GÍRKASSI:
Gírkassi/

Sjálfskipting:
Frjáls val er á gírkassa/sjálfskiptingu.

Skiptir:
Nota má hvaða skipti sem er sem á við viðkomandi gírkassa/sjáfskiptingu.

Kúpling:
Frjálst val.

Converter:
Nota má hvaða kúplingu/converter sem er.

DRIFRÁS:

Hásing&Drif:
Frjáls val er á hásingum og drifum.
Læsingar í drif eru leyfðar.
Rafsoðin drif bönnuð, spólulæsingar bannaðar.

Drifskaft:
Æskilegt er að baula sé utan um drifskaft á bílum með afturdrif.

BÚKKAR & FJÖÐRUN
Fjöðrun:
Fjöðrum og fjaðrakerfi má ekki breyta frá original í neinum bíl.
Fjöðrunarkerfi verður að vera eins og hver tegund og gerð kom með frá verksmiðju.
Þetta á við bæði um fram og afturfjöðrun.
Staðsetning fjöðrunarkerfis og festinga verður að vera sú sama og var frá verksmiðju á hverri tegund og gerð.Breyta má stífleika fjaðra, gorma vindustanga osf….
Ekki má nota einblöðung sem afturfjöðrun.

Demparar:
Frjálst val er á dempurum:

Búkkar:
Allir venjulegir spyrnubúkkar leyfðir.
Bannað er að nota annað en original "four link" eða "ladder link", nema að bíllinn hafi komið upprunalega með svoleiðis búnaði frá framleiðanda.
Ekki má klippa úr yfirbyggingu til að koma búkkum fyrir.

YFIRBYGGING

Yfirbygging:
Yfirbygging verður að vera eins og original hvað efni, stærð og útlit varðar.
Setja má þó á vængi og vindskeiðar sem seldar eru á almennum markaði og smíðaðar eru fyrir viðkomandi bíl.
Einnig er leyfilegt að setja aukaopnun (cowl induction) á vélarhlíf ef hún er hulin og máluð í sama lit og bíllinn. Plast vélarhlífar með "cowl induction" leyfðar.

Innrétting:
Allir bílar verða að vera með upprunalegri innréttingu þmt teppi stóla klæðning osf…
Leyfilegt er að klæða innréttingar og bólstra.
Skipta má út framstólum fyrir keppnistóla(mælt er með að það sé gert) sem verða að vera í upprunalegri staðsetningu.
Aftursæti má fjarlægja til að koma fyrir veltiboga, en ganga verður snyrtilega frá því gati sem myndast milli ökumannsrýmis og farangursrýmis.

DEKK & FELGUR

Felgur:
Allar gerðir af felgum leyfðar, mega þó ekki vera minni en 13" nema að bíllinn hafi komið original á þeim frá verksmiðju.
Felgur mega ekki ná út fyrir yfirbyggingu bíls.

Dekk:
Bílar með drifi að framan mega nota götuslikka.
Bílar eingöngu með eindrifi mega nota slikka. Bílar með drifi að aftan radial dekk, en er þó leyft að nota radial götuslikka.

Bílar með drifi að framan mega nota slikka.
Bílar með drifi að aftan mega nota “DOT” merkta götuslikka.
Fjórhjóladrifsbílar mega aðeins nota venjuleg götudekk. Öll "soft compound" dekk hvort sem það eru slikkar eða götuslikkar, "radial" eða "diagonal" eru bönnuð á bílum með drifi á öllum hjólum.
Öll dekk verða að vera merkt "DOT"
Dekk mega aldrei standa út fyrir yfirbyggingu bíls.

ÖKUMAÐUR

Ökumaður:
Ökumaður skal sitja í ökumannssæti sem er í sömu staðsetningu og orginal, og vera með löglegan og staðlaðan hjálm á höfði.
Tregbrennandi keppnisgalli æskilegur.

Hjálpartæki:
Öll hjápartæki til að aðstoða ökumann við brautarræsingu eru bönnuð.

Öryggisbelti:
Allir bílar verða að vera útbúnir með amk. þriggja punkta beltum.
Allir bílar sem fara niður fyrir 11,99sek verða að vera með 5. punkta keppnis belti.
Kv. Nóni

_______________

Jón Gunnar Kristinsson,
með SAAB á heilanum.
www.icesaab.net

Betra er að blása en að sjúga!
SAAB 9000 túrbó 1987    12.100 @ 115.0

Offline Bc3

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 703
    • View Profile
Reglu og lagabreytingatillögur til aðalfundar. RS flokkur.
« Reply #1 on: February 25, 2007, 21:50:40 »
mér fynnst að 1600 vélar meiga líka hafa nítro  :lol:   annars er þetta alveg sweet flokkur ánægður með ykkur ef þetta fer i gegn
Kveðja Alfreð F. Björnsson
ÍSLANDSMEISTARI RS     2009
ÍSLANDSMEISTARI 13,90 2007
ÍSLANDSMEISTARI 13,90 2006
Olís Götuspyrna fwd 2007
______________________________
11,4@127MPH  60" 1,98

Offline Nóni

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.213
    • View Profile
    • http://www.icesaab.net
Reglu og lagabreytingatillögur til aðalfundar. RS flokkur.
« Reply #2 on: February 26, 2007, 00:01:30 »
Quote from: "Bc3"
mér fynnst að 1600 vélar meiga líka hafa nítro  :lol:   annars er þetta alveg sweet flokkur ánægður með ykkur ef þetta fer i gegn



Þær mega það nú þegar, ef þessar tillögur ná fram að ganga þá mega 2300 vélar vera með nítró líka. Farðu svo að vakna og lesa áður en þú pikkar inn athugasemdir.


Nóni
Kv. Nóni

_______________

Jón Gunnar Kristinsson,
með SAAB á heilanum.
www.icesaab.net

Betra er að blása en að sjúga!
SAAB 9000 túrbó 1987    12.100 @ 115.0

Offline Birkir F

  • Playing NHRA on playstation
  • *
  • Posts: 15
    • View Profile
Reglu og lagabreytingatillögur til aðalfundar. RS flokkur.
« Reply #3 on: February 26, 2007, 09:16:48 »
Þýddi ekki ,,líka" þarna í textanum hans Bc3 að hann vildi keyra með túrbó og nítrói ?   Sum sé tveimur power adderum ???  Ég skildi það þannig, en kannski lifi ég í draumi líkt og svo margir :D

Kv.  Birkir (lesinn)

Offline Nóni

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.213
    • View Profile
    • http://www.icesaab.net
Reglu og lagabreytingatillögur til aðalfundar. RS flokkur.
« Reply #4 on: February 26, 2007, 16:39:29 »
Ég held að menn ættu fyrst að koma og sýna að það sé þörf fyrir þetta áður en byrjað er að nölla. Alli er n/a hetja þannig að hann á langt í land :lol: .



Nóni
Kv. Nóni

_______________

Jón Gunnar Kristinsson,
með SAAB á heilanum.
www.icesaab.net

Betra er að blása en að sjúga!
SAAB 9000 túrbó 1987    12.100 @ 115.0

Offline Bc3

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 703
    • View Profile
Reglu og lagabreytingatillögur til aðalfundar. RS flokkur.
« Reply #5 on: February 26, 2007, 18:31:54 »
alltaf sömu stælanir í þér gamli kall :lol:  ætli ég keyri ekki bara á nitro þar sem ég held að ég hafi tynt túrbínuni  :roll:   :lol:  :lol:
Kveðja Alfreð F. Björnsson
ÍSLANDSMEISTARI RS     2009
ÍSLANDSMEISTARI 13,90 2007
ÍSLANDSMEISTARI 13,90 2006
Olís Götuspyrna fwd 2007
______________________________
11,4@127MPH  60" 1,98

Offline Racer

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 2.464
    • View Profile
Reglu og lagabreytingatillögur til aðalfundar. RS flokkur.
« Reply #6 on: February 27, 2007, 19:00:15 »
bara stærri túrbínu í stað nitró ;)
Davíð Stefánsson
KK Member 2015 #857

Offline Dodge

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 2.204
    • View Profile
Reglu og lagabreytingatillögur til aðalfundar. RS flokkur.
« Reply #7 on: February 27, 2007, 21:04:03 »
eða stærra gas í stað bínu.
Besti tími í kvartmílu. 10,697  60ft. 1,543  hraði. 114,5mph
Besti tími í 1/8. 6,526  60ft. 1,865  hraði. 117,5
Besti tími í sandi 4,762

Kveðja, Stefán Steinþórsson
sími: 866-9282   e-mail: dodge@ba.is

Offline Valli Djöfull

  • Doing 20ft wheelies
  • ******
  • Posts: 2.714
    • View Profile
Reglu og lagabreytingatillögur til aðalfundar. RS flokkur.
« Reply #8 on: April 01, 2007, 17:31:52 »
Samþykkt!
Valbjörn Júlíus Þorláksson - GSM: 820-8488