Man ekki einhver eftir þræði sem settur var inn hérna á spjallið fyrir um ári síðan?
Þetta var þráður um fund á bílum sem gamall maður hafði safnað í gegn um árin í hlöðu og leit á þetta sem einhverskonar fjárfestingu þegar lengra var litið. Maðurinn lést og "gleymdust" bílarnir í mörg ár. Þeim hafði flestum verið lagt milli 1970-1975.
Þetta voru ýmiskonar bílum frá 1965-1974, m.a. Shelby, Yenko Camaro/Nova, SS Chevelle, Cudur með HEMI og án... ofl. ofl. Mig minnir að Shelbyarnir hafi verið í gám fyrir utan hlöðuna.
Getur einhver bent mér á þennan þráð eða síðunna þar sem þessi fundur var uppgötvaður?