Kvartmílan > Aðstoð

25 ára pallbíll

(1/2) > >>

tommi3520:
Jæja, þetta er 1982 dodge power ram sem ég er að tala um, hann verður semsagt fornbíll á þessu ári og hvað svona í grófum dráttum er maður að græða á því?

Engin birfreiðagjöld og fær maður eitthvað betri díl á tryggingum?

Fann ekkert um þetta inná www.forbill.is

Tómas

Valli Djöfull:
það er víst misjafnt eftir tryggingarfélögum.   Víða þarf maður að vera með hann skráðan spes hjá þeim sem "sparibíl" og vera þá að borga fullt gjald af öðrum bíl :)

En prófaðu bara að bjalla í tryggingarfélagið sem þú borgar þínar tryggingar hjá og gáðu hvað þeir bjóða þér..

Dodge:
það er gegnumsneitt hjá trygginafélugum að ef þú ert með einn nýjann bíl með þá færðu fornbílatryggingu á þennan,, algengt gjald á slíku er 10 - 20.000 á ári.

tommi3520:

--- Quote from: "Dodge" ---það er gegnumsneitt hjá trygginafélugum að ef þú ert með einn nýjann bíl með þá færðu fornbílatryggingu á þennan,, algengt gjald á slíku er 10 - 20.000 á ári.
--- End quote ---


Snilld!

Olli:
Ég er nú bara með 2 fornbíla á mínu nafni og fæ fornbílatryggingu á þá báða hjá Sjóvá.
Þurfti ekkert að tala við þá, þeir voru bara settir á fornbílatryggingu og ekkert vesen.  Þó svo að ég sé ekki með neinn annan bíl á fullum tryggingum.
Er að borga um 14þús af 66mustangnum og 16þús af 79Econoline 38"breyttum.

:D
 og er alveg hæstánægður með það bara.

Navigation

[0] Message Index

[#] Next page

Go to full version