Kvartmílan > Leit að bílum og eigendum þeirra.
Dodge GTS
1966 Charger:
Á Olds þræðinum sem byrjaði hér er komin umræða um þessa fínu GTS bíla sem komu hingað um 1970. Þetta eru nú það merkilegir vagnar að það er fullt tilefni að starta bara sérþræði um þá:
Það komu 12 GTS 1969 árgerð hingað til lands allir með 340 vél. Það sem er hvað merkilegast við þá er að VIN númerin á þeim voru í röð frá 98177297-98177308. Engin önnur auðkenni voru á VIN númerunum eins og venja var að setja á VIN plöturnar frá Chrysler verksmiðjunum í U.S.A. Það er vel hugsanlegt að þessir bílar hafi verið fluttir hálfsamsettir frá USA til Evrópu þar sem samsetning var kláruð. Það sam aðgreindi þessa GTS bíla frá bræðrum þeirra sem runnu beint út úr Hamtramck, Detroit voru hliðarljósin sem voru bæði appelsínugul (á fram- og afturbretti) á bílunum sem komu hingað en þau voru rauð og gul á Detroit bílunum. Flautan var í stefnuljósarofunum á þessum 12 bílum en í stýrinu á Detroit GTS-unum. Að auki var einföld klukka í mælaborðinu á GTS unum sem komu hingað en slíkt var ekki að finna í Detroit GTS-unum. Loks er glerið í þeim merkt fyrirtæki í Hollandi. Bílarnir voru upphalflega í grænum, hvítum og gráum litum. Ég er ekki viss um að neinn hafi original verið rauður. Innflutningi þessara fallegu og spræku vagna ber að þakka ötulu Chryslerumboði sem þá var starfandi undir merkinu Vökull. Það umboð steytti m.a. hnefann gegn ægivaldi þeirra örfáu skipafélaga sem einokuðu (og hafa enn afl í skjóli fákeppni til að skrifa flutningsreikninga með gaffli) flutninga á bílum hingað til lands þegar Vökull leigði í nokkur skipti sérstök bílaflutningaskip sem komu með Mopar vagnanna heim á kajann á lægra verði. Sölutölur á Mopar voru háar hérlendis þegar umboðið stóð í blóma enda ekkert betra en Mopar í glímunni við íslenska vegi.
Ragnar
Dart 68:
Ertu með einhverjar ´68 tölur og þá líka þá sem EKKI eru GTS??????
1966 Charger:
Nei ég hef ekkert tekið saman um 68 hardtop bílana en þeir voru þó mun færri (kannski fjórir? aðrir vita það betur en ég). Það var hægt að fá hardtop Dart í fjórum útfærslum 1968:
Dart.- Bara 170 og 225 c.i. sexur í boði í þá.
Dart 270.- Vélar: slant six 170 c.i og 273 @ 190 hö.
Dart GT -(lúxus útgáfa af 270 týpunni með sömu vélum)
Dart GTS- með standard vélina sem 340 @ 275 hö. en 383 @ 300 hö. var option. Svoleiðis bíll er til hér.
GTS bílarnir voru með styrktri fjöðrun, redline dekkjum og bumblebee rönd.
Ég er með upplýsingar um feril margra 69 GTS-anna þannig að ef einhver sem málið er skylt sendir mér VIN númerið þá skal ég senda til baka það sem ég hef.
Mér dettur í hug ein saga af þessum GTS-um. Það var fagran sunnudagsmorgunn sirka 1980 að á planinu við Essonesti á Akureyri stóð yfirgefinn GTS, með kaðalspotta framan úr sér og planið undir vélinn löðrandi í olíu. Sagan segir að norðlenskir drengir höfðu keypt bílinn þessa helgi og haldið heim á laugardegi eftir að búið var að lesta bílinn (af víni). Þetta var áður en klæðning var komin á þjóðveg 1 þannig að ekki var mikið hægt að prófa hinn nýkeypta farkost og þó..........brýrnar voru steyptar. Það var semsagt stoppað við hverja einustu brú, liðinu hleypt út í misjöfnu ástandi og svo var bara tekið burnout yfir á meðan hirðin blandaði. Þetta hafa verið svona upp undir 20 burnout og skammt norðan Akureyrar tók 340 vélin sér hlé frá störfum.
moparforever:
gaggi getur ekki verið að þessir ágætu bílar hafi komið frá Israel sem seinniársbílar? og maður sem vann í umboðinu og seldi mér einn, sem sveinn rafnsson ekur í dag, á sínum tíma sagði mér að þeir hefðu verið 19 en ég sel það mjög ódýrt þar sem hann virtist ekkert leggja mikið uppúr sannsögli (allavega ekki þegar hann lýsti gripnum) eitt enn voru þeir ekki allir með snúningshraðamælir fremst á stokknum sem ekki var í öllum?
1966 Charger:
Jú þetta voru víst einhverslags seinni árs bílar að því leyti að þeir komu ekki hingað á framleiðsluárinu. Ég er ekki með þetta með snúllarann á hreinu, en efast um að bílarnir hafi komið frá Ísraelsríki. Sjáðu til þessi VIN sem vantaði framan á sá ég líka á 67 Dart GT 273 HP sem ég átti og mig minnir að samakonar VIN hafi líka dúkkað upp á innfluttum Mopar vögnum í Svíþjóð.
Ég hef hingað til veðjað á að lokasamsetningin hafi farið fram utan USA og þar sem glerið í þeim er með stimpla frá fyrirtæki (Staalglas) í Amsterdam þá er nærtækt að álykta Evrópu en það er engin sönnun. Mopar var alltaf með mjög sterka sölu í Frakklandi og Spáni á þessum árum og bestu löggubílarnir sem Svíar hafa átt (sorrý Volvo fans) voru Plymouth Valiant.
Það væri gaman ef einhver sem veit þetta örugglega getur frætt okkur.
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version