Kvartmílan > Aðstoð
Smá reynslusaga.. Bensíndæla neitaði í gang og leiddi út..
(1/1)
Valli Djöfull:
Ég taldi mig fyrst vera með ónýta bensíndælu. Því hún fór ekki í gang í nema svona 10. hvert skipti sem svissað var á bílinn og þá fór hann í gang.
Svo mánuði seinna :oops: (ég veit ég veit, hefði átt að vera búinn að gera eitthvað í þessu) þá fór hann að verða rafmagnslaus ef hann stóð eitthvað.. meira en svona 5-6 tíma..
Ég taldi hann leiða út, og var að verða svolítið pirraður. Svo gaf ég mig... allt mælt fram og til baka. En engin útleiðsla. Djöfuls helvíti hehehe..
Svo var mér sagt eftir mælingu að geymirinn tapaði hleðslu um leið og hann færi af hleðslutækinu svo ég gaf mig... kaupi helvítis geymi. Talaði við samstarfsmann minn hérna hjá Olís og hann plöggaði mér RISA geymi! 8) 100 amp... Bara það stærsta sem passaði :lol:
Svo fór hann með hinn og júbb... ónýt sella, var ekki nema 10 volt.. og var já.. vægast sagt hand ónýtur :lol:
Nú býst ég við að þetta 2ja mánaða hundleiðinlega vandamál sé úr sögunni :)
Ég vildi bara miðla þessarri rugl reynslu minni. Ekki vissi ég að bensíndælan gæti látið svona vegna lítils rafmagns... eða semsagt of lágrar spennu.. Hann náði alveg að snúa vélinni á fullu... En var bara með 10 volt svo dælan bara neitaði í gang.
JONNI:
Gott að athuga með fuel pump relay líka, þau eiga það til að skapa svona vandræði.
Kveðja, Jonni.
Valli Djöfull:
--- Quote from: "JONNI" ---Gott að athuga með fuel pump relay líka, þau eiga það til að skapa svona vandræði.
Kveðja, Jonni.
--- End quote ---
Ég var líka "á leiðinni" að athuga það hehe.. en.. já.. það tafðist sökum leti :) En ég er búinn að vera að nota hann í dag og hann virkar sem nýr svo ég býst við að þetta hafi bara verið helvítis geymirinn eftir allt saman :)
Navigation
[0] Message Index
Go to full version