Author Topic: Leikdagur 27. ágúst á Rallykrossbrautinni  (Read 2004 times)

Offline Porsche-Ísland

  • In the burnout box
  • ***
  • Posts: 140
    • View Profile
Leikdagur 27. ágúst á Rallykrossbrautinni
« on: August 16, 2006, 11:25:29 »
Sunnudaginn 27. ágúst verður leikdagur á Rallykross brautinni.

Brautin verður opin frá 11 og eitthvað fram eftir degi.  Fer eftir aðsókn.

Þar mun fólk geta leikið sér og lært inn á bílana sína.

Einungis einn bíll mun verða í brautinni í einu.

Bílar þurfa að vera með skoðun og með tryggingarviðauka.
Og standast skoðun á staðnum ef þurfa þykir.

Ökumenn þurfa að framvísa gildu ökuskýrteini.

Öllum sem taka þátt er skylt að nota öryggishjálm.

Það verður enginn tímatökubúnaður í gangi enda er þetta bara leikur.

Ef ökumaður veldur tjóni á brautinni eða umhverfi hennar er ökumaður ábyrgur fyrir því og verður að laga það.

Til að fá að aka þurfa menn að ganga í Mótorsportklúbb Íslands og er árgjald fyrir árið 2006  3000 krónur en ókeypis verður að keyra fyrir meðlimi þennan dag.

Þeir sem ætla að taka þátt verða að koma með tryggingarviðauka og undirritaða þáttökuyfirlýsingu, og 3000 krónur í seðlum.

Engin undanþága verður frá þessum reglum.

Bara að taka fram að þetta fari fram á Rallykrossbrautinni v/Krísuvíkurveg
Þessi braut er við veginn til Krísuvíkur, ca. 5 km frá Hafnarfirði.

Þetta er mynd af brautinni.



Þarna er bæði malbikuð 830 metra löng braut og svo er þarna rúmlega 1000 metra löng rally kross braut. Þær eru samtvinnaður.

Ef menn lenda í vandræðum við að rata þá hringið í mig í síma 897 1020.


Þáttökuyfirlýsing

Þátttökuyfirlýsing vegna æfingar í brautarakstri
sem fram fer þ. 27 / 08 / 2006


Undirritaður ökumaður lýsir því hér með yfir að hafa lesið reglur þær sem gilda um æfinguna og samþykkir að fara eftir þeim í einu og öllu.
Undirritaður gerir sér grein fyrir þeim hættum sem fylgja akstri á brautini og tekur alfarið þátt í henni á eigin ábyrgð.
Undirritaður staðfestir með undirritun sinni að gera engar kröfur á hendur umsjónamanni brautarinnar, landeiganda né heldur þeim er stjórna leikdeginum vegna mögulegs tjóns sem hann kann að verða fyrir í keppninni - hvort heldur um er að ræða eigna- eða líkamstjón.


______________________________________
Nafn ökumanns

___________________
Kennitala

_____________
Bílnúmer

____________   ____________________
GSM númer og e-mail


(vegna ökumanna sem er yngri en 18 ára)
Undirritaður forráðamaður ökumanns samþykkir ofangreinda skilmála og gefur samþykki fyrir þátttöku viðkomandi.


_____________________________________
Nafn forráðamanns

_____________________
Kennitala
Halldór Jóhannsson

Offline Geir-H

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 946
    • View Profile
Leikdagur 27. ágúst á Rallykrossbrautinni
« Reply #1 on: August 16, 2006, 23:04:46 »
Þetta var bara snilld, Dóri á hrós skilið fyrir þetta
Geir Harrysson #805